Sat látin á McDonald's klukkustundum saman Stefán Ó. Jónsson skrifar 6. október 2015 17:42 Hong Kong er ein þéttbýlasta borg heims en rúmlega 7 milljón manns búa þar á 1100 ferkílómetra svæði. Vísir/AFp
Lík heimilslausrar konu fannst í einu útibúi veitingastaðakeðjunnar McDonald‘s í Hong Kong á laugardagsmorgunn. Talið er að það hafi legið þar klukkustundum saman áður en gestir og starfsfólk staðarins veittu því eftirtekt. Fráfall konunnar, sem var á sextugsaldri, hefur hleypt af stað háværri umræðu um stöðu þeirra fjölmörgu útigangsmanna sem leita sér skjóls í veitingastöðum borgarinnar sem opnir eru allan sólarhringinn. Þarlendir miðlar greina frá því að lík konunnar hafi fundist þar sem það lá fram á eitt af borðum staðarins. Hafði hún þá verið á veitingastaðnum, sem staðsettur er í verkamannahverfinu Ping Shek, í um sólarhring. Upptökur úr myndavélakerfi staðarins leiddu í ljós að líkið hafi legið fram á borðið í um sjö klukkustundir áður en gesti staðarins fór að gruna að eitthvað kynni að vera að. Að sögn South China Morning Post var konan reglulegur næturgestur á veitingastaðnum. Í tilkynningu frá félagsstofnun borgarinnar segir að málið sé litið alvarlegum augum og endurspegli víðfemt og flókið vandamál sem heimilislausir í Hong Kong búa við. Fjölmargir neyðast til búa á götunni í ljósi hás húsnæðisverðs. Þegar hitinn er mikill og rakastigið hátt leita margir þeirra skjóls í loftkældum veitingastöðum sem opnir eru allan sólarhringinn, líkt og raunin var með fyrrnefndan McDonald‘s stað. Talsmaður keðjunnar hefur vottað aðstandendum konunnar samúð McDonald‘s og heitið viðskiptavinum staðarins að þessi staða muni ekki koma upp aftur.
Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Fleiri fréttir Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka Sjá meira