Gerrard: Ég fékk líka knús frá Klopp Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. nóvember 2015 09:15 Gerrard fylgist með leik Liverpool gegn Crystal Palace. Vísir/Getty
Jürgen Klopp hefur vakið gríðarlega athygli eftir að hann tók við stjórastöðunni hjá Liverpool og leikmenn virðast hafa tekið honum opnum örmum. Steven Gerrard, fyrrum fyrirliði Liverpool, var gestur í myndveri BT Sport á Englandi í gær en Liverpool vann þá 2-1 sigur á Bordeaux í Evrópudeild UEFA. Gerrard var spurður hvort hann hafi hitt Klopp og hvort að hann hafi fengið eitt af frægu faðmlögum hans. „Ég fékk reyndar eitt sjálfur,“ sagði Gerrard og hló. „Þau eru mjög fín. Hann lætur mann líða vel.“Sjá einnig: Gerrard mætir á æfingar í næstu viku Gerrard segir að áhugi Klopp sé afar smitandi og að hann láti leikmenn líða vel. „Ég er sjálfur fyrrverandi leikmaður en samt leið mér virkilega vel eftir að ég kom af skrifstofunni hans.“ „Þetta er það sem hann hefur fært félaginu. Hann hefur lyft því öllu á annað plan, bæði fyrir alla hjá félaginu og stuðningsmennina. Liðið er líka að spila virkilega vel undir hans stjórn.“ Hann segir að þrátt fyrir að Klopp sé vinalegur og vilji öllum vel séu æfingarnar hans vel skipulagðar og að hann krefjist mikils af leikmönnum sínum. „Það er alveg skýrt hvað hann vill að leikmenn geri, hvernig hann vill að leikmenn pressi, á hvaða tímapunkti og á hvaða svæði. Það er áhugavert að sjá og ég hlakka til að sjá hvernig liðið þróast undir hans stjórn.“
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Lech Poznan - Breiðablik 7-1 | Afhroð í Póllandi Fótbolti Enskar í úrslit eftir dramatík Fótbolti Styttist í að Orri Steinn verði ekki lengur stærsta sala FCK Fótbolti Hrósuðu Túfa í hástert: „Á einhvern hátt heldur maður með honum“ Fótbolti Borgarstjórinn forðast að ræða hótanir Trumps Sport „Fjölmennasti leikur sem Breiðablik hefur spilað“ Fótbolti Mætti með bikarinn á frumsýningu Happy Gilmore Golf Rakarastofa og sjónvarp fyrir alla í flottasta búningsklefa heims Sport Sögunni endalausu um Gyökeres loksins að ljúka Enski boltinn Búinn að eyða yfir tuttugu milljörðum en segist vanta meira Fótbolti Fleiri fréttir Palace áfrýjar og vill spila í Evrópudeildinni Sögunni endalausu um Gyökeres loksins að ljúka Amorim og Guardiola vilja fyrrum lærisvein þess fyrrnefnda Mbeumo staðfestur hjá félagi drauma sinna Nýi Liverpool maðurinn í fámennum hópi með Mo Salah Will Ferrell stal athyglinni frá daufum leik Man.United í gær Liverpool kaupir Ekitike fyrir meira en níutíu milljónir evra Rannsaka Íslendingafélagið Burton Albion Rashford nálgast Barcelona Hvar mun Mbeumo spila fyrir Man United? Hrókeringar í markmannsmálum Man City Ince missir prófið og þarf að borga yfir milljón í sekt Madueke skrifar undir hjá Arsenal Hittust á Íslandi og keyptu Mbeumo Stuðningsmenn Manchester United oftast handteknir Snoop Dogg orðinn einn af eigendum Swansea City Liverpool langt komið með að kaupa Ekitike Eigendur Burnley eignast hitt liðið í Barcelona Liverpool reynir líka við Ekitike Steven Gerrard orðinn afi Liverpool tilbúið að slá metið aftur Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Fyrrum leikmaður Manchester United lögsækir félagið Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Sjá meira