Wenger og Vardy bestir í október Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. nóvember 2015 07:30 Þessir voru flottir í október. vísir/getty
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur verið útnefndur stjóri október mánaðar í ensku úrvalsdeildinni. Wenger stýrði Arsenal til sigurs í öllum fjórum deildarleikjum liðsins í mánuðinum, en hann hófst á 3-0 stórsigri á Manchester United. Því fylgdu sigrar á nýliðum Watford og svo Everton og Swansea, en þessi sigurganga hjálpaði Arsenal að ná Manchester City að stigum á toppnum. „Það er gott að fá þessa viðurkenningu því þetta minnir mann á að þrátt fyrir tapið gegn Bayern stóðum við okkur vel í síðasta mánuði,“ segir Arsene Wenger. „Nú reynir á að halda þessu skriði gangandi á næstu mánuðum. Það viljum við reyna að gera.“ Aðspurður um sigurinn flotta á Manchester United segir Frakkinn: „Hann stóð upp úr því það eru ekki margir leikir á ferlinum þar sem gjörsamlega allt smellur saman á fyrstu 20 mínútunum. Þetta var þannig leikur.“ Jamie Vardy var á sama tíma útnefndur leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni en hann skoraði í öllum fjórum leikjum Leicester í mánuðinum og setti í heildina fimm mörk í fjórum leikjum. Vardy er búinn að skora í níu leikjum í röð í deildinni og getur jafnað met Ruud van Nistelrooy eftir landleikjahléið með því að skora í tíunda leiknum í röð.
Enski boltinn Tengdar fréttir Vardy getur bætt met Nistelrooy á Old Trafford Jamie Vardy er nú þegar búinn að gera betur en Nistelrooy með því að skora í níu leikjum í röð á sama tímabilinu. 9. nóvember 2015 12:30 Mest lesið Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Íslenski boltinn „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Íslenski boltinn „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira
Vardy getur bætt met Nistelrooy á Old Trafford Jamie Vardy er nú þegar búinn að gera betur en Nistelrooy með því að skora í níu leikjum í röð á sama tímabilinu. 9. nóvember 2015 12:30