Neville: Martial verður einn sá besti í heimi Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. nóvember 2015 08:00 Anthony Martial fiskar vítaspyrnu með hraða sínu sem innsiglaði sigur liðsins gegn WBA. vísir/getty
Phil Neville, fyrrverandi leikmaður Manchester United, telur að Anthony Martial, framherji liðsins, verði einn sá besti áður en fram líða stundir. Frakkinn ungi, sem er aðeins 19 ára gamall, kostaði United 36 milljónir punda til að byrja með og sú upphæð getur hækkað verulega vegna árangurstengdra greiðslna. Neville segir þetta þó vera tombóluverð í ljósi gæða stráksins. „Það sem hann kemur með fyrst og fremst inn í United-liðið er hraði og hraði í skyndisóknum eins og við sáum gegn Everton. Hann kemur líka með hraða inn í þetta þegar liðið er að senda boltann á milli sín eins og Louis van Gaal vill gera,“ segir Neville um strákinn á heimasíðu Manchester United. „Hann er sterkur og snöggur. Fólk efast um upphæðina sem hann var keyptur á en ég held að United hafi gert kjarakaup. Martial er gerður fyrir ensku úrvalsdeildina.“ Martial kom inn með miklum látum. Hann skoraði í fyrsta leik gegn Liverpool og setti mark í fyrstu fjórum leikjum sínum en hefur nú aðeins skorað eitt í síðustu níu og ekki tekist að skora í síðustu sex leikjum. „Það er meira á leiðinni,“ segir Neville sem hefur tröllatrú á Martial og telur að hann eigi eftir að fara alla leið á toppinn. „Hann er enn þá ungur. Hann er að læra og við munum sjá meira frá þessum framherji. Hann verður, að ég tel, einn besti leikmaður heims,“ segir Phil Neville.
Enski boltinn Mest lesið Þrítug meint kærasta Lamine Yamal fær morðhótanir Fótbolti „Ég vona að þú fáir krabbamein“ Sport Svona verða stelpurnar okkar klæddar á EM Fótbolti Frakkar syrgja fótboltagoðsögn Fótbolti Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth Enski boltinn Jón Daði þakkar fyrir sig og flytur heim til Íslands Fótbolti Man Utd verði meistari í karla- og kvennaflokki 2028 Fótbolti Gummi Ben: Erum við að fara að sjá Jóhannes Karl snúa aftur í Skagaliðið? Íslenski boltinn Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Körfubolti Strákarnir hófu HM á tapi gegn Rúmenum Handbolti Fleiri fréttir Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Garnacho vill vera áfram á Englandi Tottenham festir fyrstu kaup í stjóratíð Frank Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Atlético hætt við Hernandez og sýnir Robertson áhuga Milner spilar til fertugs í von um að slá leikjametið Þrátt fyrir að vera með fimm vill Newcastle einn markvörð til viðbótar Guðlaugur Victor fær nýjan þjálfara Tottenham leitar réttar síns eftir ákvörðun INEOS Vilja að Mbeumo elti stjórann Veltir því fyrir sér hvort „24 klukkutíma reglan“ lifi af vistaskiptin Gamli liðsfélagi Arnars og Bjarka gæti bæst í þjálfarateymi Liverpool „Barcelona og Real Madrid hefðu rekið mig“ Fer fyrst í frí en semur svo við Liverpool Borga fimm milljarða fyrir táning Man. Utd með í slaginn um Ekitike Daninn orðinn stjóri Tottenham Funduðu á eyju um kaup Arsenal á Gyökeres Draumur Cunha rættist Grealish fer ekki með á HM félagsliða Liverpool að landa dýrasta leikmanni í sögu deildarinnar City staðfestir kaupin á Reijnders Sjá meira