West Ham og Chelsea höfðu ekki stjórn á sínum leikmönnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. nóvember 2015 10:00 Cesc Fabregas var einn af mörgum Chelsea-mönnum sem voru ósáttur með dómarann. Vísir/Getty
Ensku úrvalsdeildarliðin West Ham og Chelsea hafa bæði fengið væna sekt frá enska knattspyrnusambandinu. Sektin kemur til vegna framkomu leikmanna liðanna í leik þeirra 24. október síðastliðinn þegar West Ham vann 2-1 sigur á Upton Park. Fimm leikmenn Chelsea fengu gula spjaldið í leiknum og bæði Nemanja Matic og Jose Mourinho fengu að líta rauða spjaldið. Leikmenn West Ham umkringdu Jonathan Moss þjálfara eftir að Nemanja Matic tæklaði Diafra Sakho á 44. mínútu en í kjölfarið fékk Matic rautt spjald. Chelsea þarf að greiða 50 þúsund pund í sekt eða um tíu milljónir íslenskra króna. West Ham þarf að greiða 40 þúsund pund í sekt eða um átta milljónir íslenskra króna. Bæði félögin fengu einnig viðvörun um að svona mætti ekki gerast aftur því annars væri von á harðari refsingum. Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, er búinn að taka út sína refsingu fyrir að vera rekinn upp í stúku í leiknum. Hann var í leikbanni á móti Stoke um helgina og þurfti einnig að greiða 40 þúsund pund í sekt eða um átta milljónir íslenskra króna. BBC tók saman ítrekaðar sektir Chelsea að undanförnu og það er hægt að sjá þá samantekt hér fyrir neðan.Sektir Chelsea á þessu tímabili:40 þúsund pund - 8 milljónir Fyrir að hafa ekki stjórn á sínum leikmönnum í 2-0 sigri á Arsenal 19. september.50 þúsund pund - 10 milljónir Fyrir ummæli Jose Mourinho eftir 3-1 tap á móti Southampton 3. október.40 þúsund pund - 8 milljónir Fyrir rifildi Jose Mourinho við dómarann í hálfleik í 2-1 tap á móti West Ham 24. október.25 þúsund pund - 5 milljónir Fyrir að fá meira en fimm gul spjöld á móti West Ham 24. október.50 þúsund pund - 10 milljónir Fyrir að hafa ekki stjórn á sínum leikmönnum í 2-1 tapi á móti West Ham 24. október.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Evrópu-Emil með þrennu í endurkomusigri Stjörnunnar Fótbolti Fleiri fréttir Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Sjá meira