Enski boltinn

Martial yfirgaf Wembley á hækjum | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jack Butland, markvörður Englands, hugar að meiddum Martial í gærkvöldi.
Jack Butland, markvörður Englands, hugar að meiddum Martial í gærkvöldi. vísir/getty
Anthony Martial, franska ungstirnið sem slegið hefur í gegn með Manchester United í ensku úrvalsdeildinni, yfirgaf Wembley í gærkvöldi eftir vináttuleik Englendinga og Frakka á hækjum.

Martial byrjaði leikinn sem England vann, 2-0, en fór af velli á 67. mínútu þegar Antoine Griezmann, leikmaður Atlético Madríd, kom inn á. Frakkinn ungi fékk högg á fótinn og var vafinn í sárabindi er hann skrölti út í liðsrútu Frakka á hækjum.

Didider Deschamps, landsliðsþjálfari Frakklands, gerði ekki of mikið úr meiðslum Martial og sagði: „Hann finnur mikið til eftir atvik sem gerðist í teignum. Hann fékk högg ofan á fótinn.“

Louis van Gaal er líklega búinn að missa Michael Carrick í meiðsli til lengri tíma, en enski miðjumaðurinn var borinn af velli í viðureign Englands og Frakklands á föstudagskvöldið.

Nú gæti farið svo að 36 milljóna punda maðurinn Martial verði ekki með í hádeginu á laugardaginn þegar United heimsækir nýliða Watford.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×