Enski boltinn

Ferguson átti von á því að Ronaldo kæmi aftur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ekkert varð af því að gulldrengurinn snéri aftur á Old Trafford og spurning hvort það sé ein ástæðan fyrir því að Ferguson ákvað að hætta?
Ekkert varð af því að gulldrengurinn snéri aftur á Old Trafford og spurning hvort það sé ein ástæðan fyrir því að Ferguson ákvað að hætta? vísir/getty
Patrice Evra, fyrrum leikmaður Man. Utd, segir að Sir Alex Ferguson, fyrrum stjóri Man. Utd, hafi búist við Cristiano Ronaldo aftur til félagsins áður en hann hætti.

Evra segir að Ferguson hafi tjáð sér að það væri 99 prósent líkur á því að Ronaldo kæmi aftur. Skömmu síðar tilkynnti Ferguson aftur á móti óvænt að hann myndi hætta með liðið og ekkert varð af því að Ronaldo kæmi aftur.

„Svona tveim vikum áður en hann tilkynnti að hann myndi hætta tjáði hann mér að hann yrði áfram í fimm ár í viðbót. Mér leist mjög vel á það," sagði Evra.

„Hann sagði líka við mig þá að það væru 99 prósent líkur á því að Ronaldo kæmi aftur. Ég var hrikalega spenntur og sá fyrir mér að vinna Meistaradeildina á nýjan leik."

Ekkert varð úr þessu og það sem meira er þá var Evra sendur frá félaginu en hefur spilað frábærlega fyrir Juventus á Ítalíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×