Mikel segir að leikmenn styðji Mourinho Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. nóvember 2015 11:45 John Obi Mikel í leiknum um helgina. Vísir/Getty
John Obi Mikel segir að leikmenn standi þétt við bakið á Jose Mourinho, knattspyrnustjóra Chelsea. Þetta segir hann þrátt fyrir að haft hafi verið eftir ónefndum leikmanni innan herbúða félagsins að hann myndi fremur tapa en að vinna fyrir Mourinho.Sjá einnig: Leikmaður Chelsea: Myndi frekar tapa en að vinna fyrir Mourinho Chelsea tapaði um helgina fyrir Liverpool, 3-1, og er liðið í fimmtánda sæti ensku deildarinnar með aðeins ellefu stig að loknum jafn mörgum leikjum. Chelsea hefur aðeins unnið þrjá deildarleiki í haust en liðið er ríkjandi Englandsmeistari.Jose Mourinho var niðurlútur eftir tapið um helgina.Vísir/GettyChelsea er enn fremur úr leik í enska deildabikarnum eftir að hafa tapað fyrir Stoke í vítaspyrnukeppni í síðustu viku. Staða liðsins í Meistaradeildinni er heldur ekki góð en liðið er í þriðja sæti í sínum riðli með fjögur stig af níu mögulegum. Chelsea tekur á móti Dynamo Kiev í Meistaradeildinni á miðvikudag.Sjá einnig: Coutinho með tvö mörk í fyrsta deildarsigri Klopp | Sjáðu mörkin Enskir fjölmiðlar hafa sagt Mourinho valtan í sessi hjá Chelsea en því hefur hann sjálfur neitað. Fullyrt er að hann fái nú næstu tvo leiki til að bjarga starfinu sínu.Chelsea tapaði fyrir Liverpool um helgina, 3-1.Vísir/Getty„Mörkin og sigrarnir koma ekki en það má sjá á leik okkar að við erum að spila fyrir stjórann okkar og við styðjum hann heilshugar,“ sagði Mikel í viðtali sem birtist á heimasíðu Chelsea. „Það er enginn vafi á því. Ef einhver getur snúið þessu tímabili við þá er það hann.“Sjá einnig: Mourinho: Ég hef ekkert að segja Chelsea hefur tapað sex leikjum í haust en liðið tapaði aðeins þremur deildarleikjum allt síðasta tímabil. Liðið hefur enn fremur aðeins unnið einn af síðustu átta leikjum sínum í öllum keppnum. „Við erum að leggja okkur 100 prósent fram. Það sjá allir hversu mikið við leggjum á okkur en úrslitin eru einfaldlega okkur ekki í hag. Hvert einasta skot sem við fáum á okkur endar í markinu og öll skot hafa viðkomu í varnarmanni. En við erum að leggja mjög hart að okkur og við leikmenn gefum allt sem við eigum.“
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Ekkert símtal frá Trump núna og Quansah í tveggja leikja bann Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Sjá meira