Enski boltinn

Stjóralausir Chelsea-menn töpuðu þriðja leiknum í röð | Sjáðu markið

Chelsea tapaði í dag þriðja leik sínum í röð í ensku úrvalsdeildinni en liðið er í 16. sæti með aðeins ellefu stig að tólf umferðum loknum.

Jose Mourinho var ekki með liðinu í dag en hann tók út leikbann sem enska knattspyrnusambandið dæmdi hann í á dögunum eftir að hann kvartaði undan dómgæslunni á Englandi.

Það var jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik og var markalaust í hálfleik en heimamenn í Stoke skoruðu eina mark leiksins í upphafi seinni hálfleiks.

Var þar að verki Marko Arnautovic með frábæru skoti eftir fyrirgjöf en hann klippti boltann af stuttu færi.

Leikmenn Chelsea reyndu að færa sig framar á völlinn og vildu fá vítaspyrnu þegar það virtist vera brotið á Loic Remy innan vítateigs Stoke korteri fyrir leikslok en Anthony Taylor lét leikinn halda áfram.

Leikmönnum Chelsea tókst ekki að jafna metin og lauk leiknum með 1-0 sigri Stoke sem skjótast upp í 12. sætið með sigrinum.

Þetta var þriðja tap Chelsea í röð en ensku meistararnir hafa aðeins unnið tvo af síðustu níu leikjum liðsins í ensku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×