Aston Villa nældi í stig gegn Manchester City í fyrsta leik Garde Kristinn Páll Teitsson skrifar 8. nóvember 2015 15:15 Bacuna sækir að marki Manchester City í leiknum. Vísir/Getty
Aston Villa krækti í eitt stig í fyrsta leik félagsins undir stjórn hins franska Rémi Garde í 0-0 jafntefli gegn toppliði Manchester City en gestirnir voru óheppnir að ná ekki að stela sigrinum á lokamínútum leiksins. Garde tók við liði Aston Villa á dögunum af Tim Sherwood en liðið var búið að tapa sjö leikjum í röð og aðeins næla í eitt stig í síðustu tíu leikjum liðsins. Garde gerði sex breytingar á byrjunarliði Aston Villa frá 1-3 tapinu gegn Tottenham á mánudaginn og var allt annað að sjá til liðsins. Raheem Sterling fékk besta færi fyrri hálfleiksins undir lokin þegar hann fékk frábært skallafæri af stuttu færi en skalli hans fór beint í hausinn á Brad Guzan í marki Aston Villa sem skallaði boltann yfir í horn. Manuel Pellegrini reyndi að auka sóknarþungann í seinni hálfleik og setti meðal annars Fabian Delph, fyrrum leikmann Aston Villa inná en besta færi Manchester City féll fyrir Fernando sem skallaði í þverslánna af stuttu færi í uppbótartíma. Leikmenn Manchester City sóttu af miklum ákafa og áttu eflaust skilið að skora sigurmarkið en þeim tókst ekki að koma boltanum framhjá Guzan og lauk leiknum því með markalausu jafntefli. Manchester City situr í toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar í bili en Arsenal getur komist upp fyrir Manchester City með sigri á Tottenham í leik liðanna sem hefst klukkan 16.00.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Íslenski boltinn „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Íslenski boltinn „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira