Enski boltinn

Sakna íslensku landsliðsmannanna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tvö lið í ensku b-deildinni sem hafa verið ofarlega í huga íslenskra knattspyrnuáhugamanna undanfarin ár eru í miklum vandræðum í upphafi tímabilsins og framundan er lífróður að halda sæti sínu í deildinni.

Bolton Wanderers og Rotherham United eiga það bæði sameiginlegt að sitja í tveimur neðstu sætum ensku b-deildarinnar og að hafa misst íslenskan landsliðsmann fyrir tímabilið.

Eiður Smári Guðjohnsen samdi ekki aftur við Bolton heldur ákvað hann að fara í ævintýri til Kína og spila með liði Shijiazhuang Ever Bright.

Kári Árnason yfirgaf Rotherham United eftir þrjú tímabil og samdi við sænska liðið Malmö FF.  Kári spilar nú í Meistaradeildinni.

Það er óhætt að segja að Bolton og Rotherham sakni íslensku liðsmannanna á þessum tímabili.

Bolton Wanderers hefur aðeins skorað 10 mörk í fyrstu 16 leikjunum og það sem meira er að liðið hefur bara unnið einn leik. Ekkert lið í ensku b-deildinni hefur skorað svo fá mörk til þessa á tímabilinu.

Bolton er bara með 11 stig en samt með tveimur stigum meira en Rotherham-liðið sem hefur aðeins náð í 9 af 48 stigum í boði til þessa. Varnarleikurinn er í ruglinu án Kára en liðið hefur fengið á sig langflest mörk eða 34 í 16 leikjum.

Rotherham heftur þannig skorað 7 mörkum fleiri en Bolton en Bolton hefur aftur á móti fengið á sig 12 færri mörk.

Tölfræðin sýnir það svart á hvítu að sóknarleikur Bolton er ekki sá sami án Eiðs Smára Guðjohnsen og varnarleikur Rotherham er í miklum vandræðum án Kára Árnasonar. Svo gæti því farið að bæði liðin falli úr deildinni í vor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×