Enski boltinn

Krossbandið heilt hjá Sakho

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mamadou Sakho eftir að hann meiddist um helgina.
Mamadou Sakho eftir að hann meiddist um helgina. Vísir/Getty
Mamadou Sakho er ekki með slitið krossband í hné ef marka má fréttir í Englandi í kvöld. Sakho meiddist á hægra hné er Liverpool tapaði fyrir Crystal Palace um helgina, 2-1.

Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, sagði eftir leik að hann hefði frekar viljað tapa leiknum 4-1 en að missa Sakho í alvarleg meiðsli.

Sakho mun hafa farið í myndatöku í dag sem sýndi að krossbandið er heilt. Enn er þó óvitað hversu alvarleg meiðslin eru og hvenær Sakho er væntanlegur aftur.

Jordan Ibe meiddist einnig á hné í umræddum leik en marðist aðeins. Hann verður líklega klár í slaginn fyrir leik Liverpool gegn Manchester City eftir landsleikjafríið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×