Danny Murphy: Algjört grín að heimta að Mourinho verði rekinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. október 2015 10:00 Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea. Vísir/Getty
Danny Murphy, fyrrum leikmaður Liverpool, Tottenham og Fulham í ensku úrvalsdeildinni og núverandi knattspyrnuspekingur á BBC, tjáði um stöðu Jose Mourinho hjá Chelsea í pistil sem hann skrifaði á BBC-síðuna. Murphy skilur ekki í því af hverju menn búast við því að Jose Mourinho verði rekinn þrátt fyrir skelfilega byrjun hjá Chelsea á þessu tímabili. Nú síðast datt liðið út úr enska deildabikarnum í vikunni. „Það er algjört grín að það sé verið að tala um að Jose Mourinho sé næsti knattspyrnustjóri ensku úrvalsdeildarinnar til að taka pokann sinn," byrjar Danny Murphy pistilinn sinn. „Velgengnin hjá Mourinho í gegnum tíðina og þá sérstaklega hjá Chelsea, þýðir að hann hefur öðlast réttinn til að eiga þrjá slæma mánuði án þess að fá sparkið," skrifar Murphy. „Hann ætti að fá sex slaka mánuði eða jafnvel eitt slakt tímabil því allir knattspyrnustjórar lenda í slíku meira segja Sir Alex Ferguson hjá Manchester United," skrifar Murphy. Chelsea var enskur meistari á öðru tímabili Jose Mourinho með liðið en árið á undan varð liðið í þriðja sæti. Chelsea hefur þegar tapað tveimur fleiri deildarleikjum á þessu tímabili en á öllu tímabilinu í fyrra. Danny Murphy telur að stór hluti leikmannahópsins hafi ekki verið kominn í nógu gott form þegar tímabilið hófst og þá er hann á því að heppnin hafi ekki verið með liðinu á leiktíðinni. Murphy er á því að frammistaðan í tapinu á móti West Ham hafi verið ein sú besta á tímabilinu og að liðið hafi líka átt að vinna Stoke í enska deildabikarnum í vikunni. Að mati Murphy er vandamálið ekki það að leikmenn Chelsea séu hættir að spila fyrir knattspyrnustjórann sinn. Það má sjá allan pistil hans hér.
Enski boltinn Mest lesið Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Segir pabba hafa hlaupið á sig Sport Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Handbolti Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Körfubolti Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Handbolti „Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Handbolti Stjörnufólk stendur í ströngu á sunnudaginn Körfubolti „Höfum beðið eftir þessu alla úrslitakeppnina“ Körfubolti Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1| Nýliðarnir með dramatískan sigur í fyrsta heimaleiknum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Sjá meira
Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1| Nýliðarnir með dramatískan sigur í fyrsta heimaleiknum Íslenski boltinn
Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1| Nýliðarnir með dramatískan sigur í fyrsta heimaleiknum Íslenski boltinn