Klopp: Liverpool-fjölskyldan þarf að róa sig aðeins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. október 2015 07:00 Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, Vísir/Getty
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að allir sem einn í liðinu verða hrista úr sér hræðsluna sem tekur sig upp þegar hlutirnir ganga ekki alveg upp inn á fótboltavellinum. Liverpool gerði 1-1 jafntefli við Southampton eftir að Christian Benteke hafði komið liðinu í 1-0 á 77. mínútu. Saido Mane jafnaði metin níu mínútum síðar og tryggði gestunum jafntefli. „Þetta var bara eitt mark og bara fótboltaleikur. Það leit út fyrir að þetta væri það síðasta í lífinu. Við þurfum að róa okkur aðeins," sagði Jürgen Klopp við BBC eftir leikinn en Liverpool hefur gert jafntefli í fyrstu þremur leikjum sínum undir hans stjórn. „Ég átta mig ekki alveg á þessari pressu en strákarnir finna greinilega fyrir henni. Ég vona að ég hafi ekki verið sá eini í leikvanginum í kvöld sem hugsaði: "Þetta er enginn heimsendir". Við getum unnið í þessu," sagði Klopp. „Ég sá þroskamerki og ég sá liðið taka næsta skref. Við erum samt allir vonsviknir með úrslitin," sagði Klopp sem hefur hvorki unnið né tapað sem knattspyrnustjóri Liverpool. „Vandamálið er að hin liðin eru ekkert að bíða eftir okkur. Þau vilja vinna, þau vilja vinna okkur," sagði Klopp en næst á dagskrá er deildabikarleikur á móti Bournemouth. Bournemouth-leikurinn verður þriðji heimaleikur Klopp á innan við viku en Liverpool gerði 1-1 jafntefli við Rubin Kazan í Evrópudeildinni á fimmtudaginn var. „Ævintýrin gerast ekki inn á fótboltavellinum. Stundum skrifum við slíkar sögur en það gerðist ekki í dag. Við getum lagað fullt af hlutum en það gengur ekki alltaf allt upp. Þó að þú vinnir í einhverju þá ertu aldrei hundrað prósent betri daginn eftir," sagði Klopp. „Þetta er ekki spurning um hversu mikið þú getur breytt á stuttum tíma heldur hvað þú getur lagað og nýtt þér í næsta leik á eftir," sagði Klopp.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Evrópu-Emil með þrennu í endurkomusigri Stjörnunnar Fótbolti Fleiri fréttir Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Sjá meira