Sigga Jóns slagurinn í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. október 2015 15:45 Sigurður Jónsson lék bæði með Sheffield Wednesday og Arsenal. Mynd/Samsett
Sheffield Wednesday spilar einn stærsta leik tímabilsins í kvöld þegar liðið tekur á móti Arsenal í sextán liða úrslitum enska deildabikarsins. Sheffield Wednesday er í 9. sæti í b-deildinni en aðeins lakari markatala heldur Arsenal frá toppsætinu í ensku úrvalsdeildinni. Sheffield Wednesday sló út úrvalsdeildarlið Newcastle United í síðustu umferð en verkefnið er öllu erfiðara á Hillsborough-leikvanginum í kvöld. Sumir hafa farið svo langt að kalla þetta „Sigga Jóns derby-leikinn" en einn af bestu knattspyrnumönnum Íslands frá upphafi, Sigurður Jónsson, lék með báðum liðunum á níunda áratugnum. Sigurður Jónsson sló í gegn hjá ÍA og fékk ungur tækifæri í meistaraflokksliði félagsins. Hann var með liðinu 1982, 1983 og 1984 en þau sumur unnu Skagamenn fimm af sex stórum titlum í boði. Sigurður samdi síðan við Sheffield Wednesday í febrúar 1985. Sigurður var í fjögur ár hjá Sheffield Wednesday fyrir utan að hafa farið á láni í stuttan tíma til Barnsley árið 1986. Sigurður lék alls 67 leiki með Sheffield Wednesday í efstu deild á Englandi þar af 28 leiki tímabilið 1988 til 1989. Arsenal keypti Sigurð frá Sheffield Wednesday á 475 þúsund pund í júlí 1989 og þar var hann í tvö tímabil. Sigurður var afar óheppinn með meiðsli hjá Arsenel og lék aðeins 8 leiki með liðinu. Tveir af þeim voru á meistaraárinu 1990 til 1991 sem dugðu þó ekki til að hann fengi verðlaunapening en Arsenal varð enskur meistari vorið 1991. Sheffield Wednesday saknaði augljóslega Sigurðar en liðið féll úr efstu deild fyrsta tímabilið eftir að hann fór suður til London til að spila með Arsenal. Sheffield Wednesday hefur ekki spilað í ensku úrvalsdeildinni síðan vorið 2000 og fór alla leið niður í C-deild frá 2010 til 2012. Liðið endaði í 13. Sæti í ensku b-deildinni á síðustu leiktíð og var þá að hækka sig í töflunni fimmta tímabilið í röð. Leikurinn á móti Arsenal verður því einn stærsti leikur liðsins í langan tíma og margir stuðningsmenn félagsins frá þá langþráð tækifæri til að sjá sína menn spila á móti einu allra besta liði á Englands. Sheffield Wednesday hefur ekki unnið Arsenal síðan í september 1998 en liðið hefur heldur ekki tapað leik síðan að liðið lá á móti Burnley 12. september síðastliðnum. Leikur Sheffield Wednesday og Arsenal hefst klukkan 19.45 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og Stöð 2 Sport 2.
Enski boltinn Tengdar fréttir Eigum tíu prósent möguleika á móti Arsenal Portúgalinn Carlos Carvalhal, þjálfari enska b-deildarliðsins Sheffield Wednesday, fær verðugt verkefni í kvöld ásamt leikmönnum sínum þegar stórlið Arsenal kemur í heimsókn á Hillsborough-leikvanginn í sextán liða úrslitum enska deildabikarsins. 27. október 2015 10:00 Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Evrópu-Emil með þrennu í endurkomusigri Stjörnunnar Fótbolti Fleiri fréttir Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Sjá meira
Eigum tíu prósent möguleika á móti Arsenal Portúgalinn Carlos Carvalhal, þjálfari enska b-deildarliðsins Sheffield Wednesday, fær verðugt verkefni í kvöld ásamt leikmönnum sínum þegar stórlið Arsenal kemur í heimsókn á Hillsborough-leikvanginn í sextán liða úrslitum enska deildabikarsins. 27. október 2015 10:00