Enski boltinn

Martial og Pochettino bestir í september

Martial með verðlaunin sín.
Martial með verðlaunin sín.
Hinn ungi leikmaður Man. Utd, Anthony Martial, hefur verið valinn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í september.

Þessi 19 ára gutti skoraði þrjú mörk í fjórum og leikjum og komu þau í fyrstu tveim leikjum hans fyrir félagið. Hann lagði einnig upp eitt mark.

Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, var valin stjóri mánaðarins en Spurs vann alla þrjá leiki sína í mánuðinum.

Á meðal sigranna var 4-1 sigur á Man. City.

Pochettino hress með sín verðlaun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×