Alex Ferguson: Var bara með fjóra heimsklassa leikmenn í United-liðunum mínum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. september 2015 16:45 Sir Alex Ferguson með þeim Cristiano Ronaldo og Eric Cantona. Vísir/Getty
Sir Alex Ferguson var knattspyrnustjóri Manchester United í 26 ár og United vann þrettán sinnum enska meistaratitilinn undir hans stjórn. Skotinn segist þó aðeins hafa verið með fjóra heimsklassa leikmenn í United-liðunum sínum. Sir Alex Ferguson er að gefa út nýja bók sem heitir "Leading" og enskir fjölmiðlar hafa verið duglegir að birta brot úr bókinni. Daily Mail vakti athygli á orðum Sir Alex um heimsklassa leikmenn. Að mati Ferguson var Cristiano Ronaldo besti leikmaðurinn sem spilaði fyrir hann hjá Manchester United en Skotinn er einnig á því að þeir Eric Cantona, Ryan Giggs og Paul Scholes hafi verið heimsklassa leikmenn. „Þegar fólk les blöðin eða hlustar á fótboltasérfræðinganna í sjónvarpinu þá er endalaust verið að tala um heimsklassa fótboltamenn," sagði Sir Alex Ferguson í bókinni sinni. „Í minni bók eru aðeins tveir heimsklassaleikmenn að spila í dag og það eru þeir Lionel Messi og Cristiano Ronaldo," skrifaði Ferguson ennfremur. „Ég vil alls ekki gera lítið úr þeim frábæru eða mjög góðu fótboltamönnum sem spiluðu fyrir mig á þessum 26 árum hjá Manchester United en það voru bara fjórir sem gátu talist vera heimsklassa eða þeir Cantona, Giggs, Ronaldo og Scholes," skrifaði Ferguson. „Af þessum fjórum þá var Cristiano eins og stjarnan á toppi jólatrésins," skrifaði Ferguson en hann keypti Cristiano Ronaldo frá Sporting Lisbon fyrir 12,24 milljónir punda árið 2003 þegar Portúgalinn var enn bara táningur. Sex árum síðar seldi hann Ronaldo til Real Madrid fyrir 80 milljónir punda.
Enski boltinn Tengdar fréttir Ferguson: Mistök hjá Moyes að reka Phelan David Moyes hefði ekki átt að reka Mike Phelan úr starfi aðstoðarþjálfara þegar hann tók við Manchester United sumarið 2013. Þetta segir Sir Alex Ferguson í nýrri bók sinni, Leading sem kemur út á morgun. 22. september 2015 11:30 Ferguson ræddi við Guardiola um að taka við Manchester United Skoski knattspyrnustjórinn ræddi við Pep Guardiola um að taka við enska stórveldinu Manchester United en Ferguson greinir frá þessu í nýrri bók sem hann er að gefa út. 22. september 2015 07:30 Mest lesið Sá húsið sitt brenna til kaldra kola Körfubolti Pálmi í ótímabundið leyfi Íslenski boltinn Shakhtar - Breiðablik 2-0 | Breiðablik átti sín augnablik Fótbolti Uppgjörið: Njarðvík - Stjarnan 101-105 | Langþráður sigur Íslandsmeistarana Körfubolti Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst Fótbolti Uppgjörið: Fram - Valur 27-36 | Arnór í banastuði gegn meisturunum Handbolti ÍA - Valur 81-83 | Grátlegt tveggja stiga tap á nýjum heimavelli Körfubolti Eigandi Nott.Forest ákærður fyrir tengsl við glæpagengi Sport Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Fótbolti Uppgjörið: Álftanes - KR 108-89 | Stórsigur gegn vængbrotnu liði Körfubolti Fleiri fréttir Góður í að þekkja stórstjörnur sem börn Segir að Man United sé ekki að búa til Harlem Globetrotters-lið Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans „Mér finnst þetta ekki leiðinlegur fótbolti“ Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Fékk faðmlag frá konu Diogo Jota í miðju maraþoni Ógnaði leikmanni Tottenham með byssu út á götu David Beckham aðlaður: „Ég gæti ekki verið stoltari“ Viðtal Kjartans við Carrick: „Þolinmæðin minni og dómharkan meiri í hverri viku“ Sjáðu glæsilegan einleik Ndiayes og jöfnunarmarkið frá Xhaka Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Yfirburðir Sunderland dugðu ekki til sigurs Telja United mun líklegra til að enda í sjöunda en öðru sæti Rekinn eftir aðeins fimm mánuði í starfi Ósammála um Gyökeres: „Hefðirðu verið ánægður með fjögur mörk?“ Eigandi Forest býður fram aðstoð eftir stunguárásina Gæti tekið við Úlfunum ellefu mánuðum eftir að hafa verið rekinn frá þeim Sjáðu mörkin úr kærkomnum sigri West Ham og tvennu Haalands Van Dijk frábiður sér letilega gagnrýni Rooneys Segir allt tal um leiðinlegan fótbolta hjá Arsenal heimskulegt Guardiola segir að dómararnir hafi verið á móti City í áratug „Örugglega nokkrir Fantasy-þjálfarar ósáttir“ „Haaland er þetta góður“ Annað tap spútnikliðsins kom í Manchester Loksins West Ham-sigur í London Úlfarnir ráku Pereira Engin klipping á næstunni: Miður sín en með augun á 8. desember Vara við því að „töfradrykkur“ Haaland geti valdið matareitrun Liverpool loks á sigurbraut á ný Pedro afgreiddi Tottenham Sjá meira
Ferguson: Mistök hjá Moyes að reka Phelan David Moyes hefði ekki átt að reka Mike Phelan úr starfi aðstoðarþjálfara þegar hann tók við Manchester United sumarið 2013. Þetta segir Sir Alex Ferguson í nýrri bók sinni, Leading sem kemur út á morgun. 22. september 2015 11:30
Ferguson ræddi við Guardiola um að taka við Manchester United Skoski knattspyrnustjórinn ræddi við Pep Guardiola um að taka við enska stórveldinu Manchester United en Ferguson greinir frá þessu í nýrri bók sem hann er að gefa út. 22. september 2015 07:30