Rio segir að Stones eigi miklu frekar að fara til United en til Chelsea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. ágúst 2015 07:34 John Stones er framtíðarmaður. Vísir/Getty
Rio Ferdinand, fyrrum miðvörður og fyrirliði Manchester United, hefur blandað sér inn í baráttu Manchester United og Chelsea um framtíðarmiðvörð enska landsliðsins. Chelsea vill kaupa John Stones frá Everton en Everton hefur þegar hafnað tilboði upp á 20 milljónir punda fyrir þennan 21 árs gamla varnarmann. „Ef hann fer til Chelsea þá mun hann ekki spila í hverri viku. Það væri algjörlega glórulaust að ráðleggja ungum fótboltamanni að fara frá sínu félagi til þess eins að sitja á bekknum," sagði Rio Ferdinand í viðtali við Guardian. Hjá Chelsea spila þeir John Terry, fyrirliði, og enski landsliðsmaðurinn Gary Cahill flesta leiki liðsins. Þeir eru af flestum taldir mynda eitt allra sterkasta miðvarðarpar ensku úrvalsdeildarinnar. John Stones kom til Everton frá Barnsley árið 2013 og hefur síðan spilað 44 leiki í ensku úrvalsdeildinni fyrir Everton-liðið og unnið sér sæti í enska landsliðinu. Roberto Martinez, knattspyrnustjóri Everton, er staðráðinn í að halda leikmanninum hjá Everton en Rio vill að Stones fari til Manchester United sem vantar einmitt miðvörð. „Hann er á þeim stað á sínum fótboltaferli þar sem hann þarf að spila í hverri viku. Ef hann fer til Manchester United þá mun hann spila í hverri viku. Það er því rétta félagið fyrir hann," sagði Rio Ferdinand í umræddu viðtali en Rio spilaði 453 leiki fyrir Manchester United. Chris Smalling, Phil Jones, Marcos Rojo, Jonny Evans, Paddy McNair og Tyler Blackett eru miðverðir Manchester United í dag en Rio eins og fleiri telja að Louis van Gaal þurfi að fá einn sterkan miðvörð í viðbót. „Ég held að Louis van Gaal viti ekki enn hver sér sterkasta varnarlínan sín og það er vandamál útaf fyrir sig. Hluti af ástæðunni er að hann hefur ekki getað spilað sömu mönnum saman í langan tíma," sagði Rio Ferdinand.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ekkert símtal frá Trump núna og Quansah í tveggja leikja bann Fótbolti Fleiri fréttir Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Sjá meira