Keyrir Chile-hraðlestin yfir Perú í kvöld? Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. júní 2015 18:30 Alexis Sánchez og félagar hafa spilað liða best í Suður-Ameríkukeppninni. vísir/getty
Fyrri undanúrslitaleikurinn í Suður-Ameríkukeppninni fer fram í kvöld þegar Chile og Perú mætast á Estadio Nacional í Santíagó, höfuðborg Chile. Chile hefur leikið liða best á mótinu til þessa en heimamenn hafa ekki tapað leik og skorað flest mörk allra liða, eða 11 talsins. Chile-menn fóru í gegnum mjög erfiðan leik gegn Úrúgvæ í 8-liða úrslitum sem dró dilk á eftir sér en þrír Úrúgvæar fengu að líta rauða spjaldið í leiknum; leikmennirnir Edinson Cavani og Jorge Fucile og þjálfarinn Oscar Tabarez.Sjá einnig: Jara potaði ekki bara í rassinn á Cavani heldur talaði líka illa um föður hans. Sá fyrstnefndi var rekinn af velli fyrir að ýta við Gonzalo Jara, varnarmanni Chile, en á sjónvarpsupptökum sást Jara troða putta upp í afturenda Cavanis, auk þess sem hann á að hafa viðhaft ófögur orð um föður framherjans sem varð 19 ára gömlum dreng að bana í umferðarslysi í síðustu viku. Þrátt fyrir að hafa náð að æsa Cavani upp og fiska hann út af sleppur Jara ekki með rassapotið. Hann hefur verið úrskurðaður í þriggja leikja bann og kemur því ekki meira við sögu í Suður-Ameríkukeppninni en Chile á aðeins eftir að leika tvo leiki.Sjá einnig: Puttalingurinn þarf líklega að finna sér nýtt lið.Paolo Guerrero skoraði þrennu gegn Bólivíu í 8-liða úrslitunum.vísir/gettyChile hefur aldrei tekist að vinna Suður-Ameríkukeppnina en síleska liðið hefur fjórum sinnum endað í 2. sæti keppninnar og fimm sinnum í því þriðja. Chile féll út í 8-liða úrslitum í síðustu keppni, fyrir fjórum árum. Perú hefur hins vegar tvívegis unnið keppnina, á heimavelli 1939 og 1975 þegar Teófilo Cubillas fór fyrir liðinu en hann var í hópi bestu leikmanna heims á sínum tíma. Perú náði góðum árangri í Argentínu fyrir fjórum árum og náði þar í bronsverðlaun eftir 4-1 sigur á Venesúela í leiknum um 3. sætið. Paolo Guerrero skoraði þrennu í leiknum en hann hefur einnig gert þrennu í keppninni í ár, gegn Bólivíu í 8-liða úrslitunum í síðustu viku. Chile og Perú hafa mæst 18 sinnum í Suður-Ameríkukeppninni og útkoman gæti ekki verið jafnari. Liðin hafa unnið sex leiki hvort og sex sinnum hafa þau gert jafntefli. Leikur Chile og Perú hefst klukkan 23:30 í kvöld en sigurvegarinn mætir annað hvort Argentínu eða Paragvæ í úrslitaleiknum 4. júlí.
Fótbolti Tengdar fréttir Puttalingurinn þarf líklega að finna sér nýtt lið Líklegt þykir að þýska úrvalsdeildarliðið Mainz 05 muni láta síleska landsliðsmanninn Gonzalo Jara fara frá félaginu vegna atviks sem átti sér stað í leik Chile og Úrúgvæ í 8-liða úrslitum Suður-Ameríkukeppninnar í fyrradag. 26. júní 2015 11:30 Guerrero með þrennu í sigri Perú | Sjáðu mörkin Paolo Guerrero skoraði þrennu þegar Perú tryggði sér sæti í undanúrslitum Suður-Ameríkukeppninnar með 3-1 sigri á Bólivíu í nótt. 26. júní 2015 07:54 Faðir Edinsons Cavani varð manni að bana Edinson Cavani gæti misst af leik Úrúgvæ og Chile í 8-liða úrslitum Suður-Ameríkukeppninnar á morgun. 24. júní 2015 08:45 Tróð fingri sínum í afturenda Cavani Gonzalo Jara gerði allt sem hann gat til að fá Edinson Cavani rekinn af velli. Og það tókst. 25. júní 2015 09:30 Þrjú rauð spjöld í sigri Chile | Myndband Chile varð í nótt fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum í Suður-Ameríkukeppninni með 1-0 sigri á Úrúgvæ í Santíagó. 25. júní 2015 08:06 Enginn vill fá Vidal eftir ölvunaraksturinn Stóru evrópsku félögin sögð hætta við kaup á Arturo Vidal eftir að hann klessukeyrði Ferrari-bifreið sína. 19. júní 2015 15:00 Jara potaði ekki bara í rassinn á Cavani heldur talaði líka illa um föður hans Gonzalo Jara virðist hafa gert allt sem hann gat til að ná framherja Úrúgvæ upp í leik liðanna. 29. júní 2015 08:30 Stjörnuleikmaður Síle handtekinn í miðri Suður-Ameríkukeppni Arturo Vidal, miðjumaður Juventus og Síle, átti ekki góðan dag í gær en hann endaði með því að þessi snjalli leikmaður var fluttur í burtu í lögreglubíl. 17. júní 2015 13:00 Vidal fær að spila áfram þrátt fyrir ölvunarakstur Grét á blaðamannafundi þegar hann baðst afsökunar á því að hafa klessukeyrt Ferrari-bifreið sína. 18. júní 2015 08:58 Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Íslenski boltinn Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Enski boltinn Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Fótbolti Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Mikael mátti þola tap á meðan bróðir hans skoraði Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ Sjá meira
Puttalingurinn þarf líklega að finna sér nýtt lið Líklegt þykir að þýska úrvalsdeildarliðið Mainz 05 muni láta síleska landsliðsmanninn Gonzalo Jara fara frá félaginu vegna atviks sem átti sér stað í leik Chile og Úrúgvæ í 8-liða úrslitum Suður-Ameríkukeppninnar í fyrradag. 26. júní 2015 11:30
Guerrero með þrennu í sigri Perú | Sjáðu mörkin Paolo Guerrero skoraði þrennu þegar Perú tryggði sér sæti í undanúrslitum Suður-Ameríkukeppninnar með 3-1 sigri á Bólivíu í nótt. 26. júní 2015 07:54
Faðir Edinsons Cavani varð manni að bana Edinson Cavani gæti misst af leik Úrúgvæ og Chile í 8-liða úrslitum Suður-Ameríkukeppninnar á morgun. 24. júní 2015 08:45
Tróð fingri sínum í afturenda Cavani Gonzalo Jara gerði allt sem hann gat til að fá Edinson Cavani rekinn af velli. Og það tókst. 25. júní 2015 09:30
Þrjú rauð spjöld í sigri Chile | Myndband Chile varð í nótt fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum í Suður-Ameríkukeppninni með 1-0 sigri á Úrúgvæ í Santíagó. 25. júní 2015 08:06
Enginn vill fá Vidal eftir ölvunaraksturinn Stóru evrópsku félögin sögð hætta við kaup á Arturo Vidal eftir að hann klessukeyrði Ferrari-bifreið sína. 19. júní 2015 15:00
Jara potaði ekki bara í rassinn á Cavani heldur talaði líka illa um föður hans Gonzalo Jara virðist hafa gert allt sem hann gat til að ná framherja Úrúgvæ upp í leik liðanna. 29. júní 2015 08:30
Stjörnuleikmaður Síle handtekinn í miðri Suður-Ameríkukeppni Arturo Vidal, miðjumaður Juventus og Síle, átti ekki góðan dag í gær en hann endaði með því að þessi snjalli leikmaður var fluttur í burtu í lögreglubíl. 17. júní 2015 13:00
Vidal fær að spila áfram þrátt fyrir ölvunarakstur Grét á blaðamannafundi þegar hann baðst afsökunar á því að hafa klessukeyrt Ferrari-bifreið sína. 18. júní 2015 08:58