Hamann: Kominn tími til að Liverpool hnykli vöðvana Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. júní 2015 07:45 Raheem Sterling vill fara frá Liverpool. vísir/getty
Liverpool á ekki einu sinni að ræða við Raheem Sterling eða umboðsmann hans í sumar um mögulega sölu frá félaginu nema alvöru tilboð berist. Þetta segir Dietmar Hamann, þýski landsliðsmaðurinn fyrrverandi sem varð Evrópumeistari með Liverpool fyrir tíu árum. Sterling hefur í marga mánuði verið í samningaviðræðum við Liverpool, en hann ætlar ekki að skrifa undir nýjan samning. Núgildandi samningur hans rennur út eftir tvö ár. Aidy Ward, umboðsmaður Liverpool, hefur verið gagnrýndur fyrir ummæli sem hann lét falla undir lok tímabilsins þar sem hann sagði Sterling vera á leið frá félaginu og hann myndi ekki skrifa undir nýjan samning þó hann fengi 900.000 pund á viku. „Það er komin tími til að Liverpool hnykli vöðvana og sýni leikmönnum og umboðsmönnum að þetta er Liverpool,“ segir Hamann í viðtali við Sky Sports News. „Ég er ekki viss um að umboðsmaður Sterlings hefði látið þetta út úr sér ef strákurinn væri að spila fyrir Manchester City, Arsenal, Chelsea eða Manchester United.“ „Nú verður Liverpool að sýna klærnar og sýna fólki hvernig hlutirnir eru gerðir. Ef ekkert lið býður alvöru upphæð í Sterling myndi ég ekki einu sinni ræða við leikmanninn eða umboðsmann hans.“ „Hann á tvö ár eftir af samningnum þannig það þarf ekkert að ræða málin núna. Ég myndi svo sannarlega ekki bjóða honum nýjan samning því það veit enginn hvað verður um hann. Hann er hæfileikaríkur spilari en var ekki góður á síðustu leiktíð,“ segir Dietmar Hamann.
Enski boltinn Mest lesið Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Enski boltinn „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Handbolti Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira