Gott að vera móðir á Íslandi en betra í Noregi Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 5. maí 2015 14:43 vísir/getty
Norðurlöndin hafa algjöra sérstöðu þegar kemur að stöðu mæðra í heiminum, ef marka má nýja skýrslu Barnaheilla sem kom út í dag. Noregur skipar fyrsta sætið, Finnland annað og Ísland það þriðja. Þá eru það frændur okkar í Danmörku og Svíþjóð sem sitja í fjórða og fimmta sæti. Afríkulöndin sunnan Sahara raða sér sem fyrr í botnsætin, en níu af ellefu neðstu löndunum eru í Afríku. Þá eru mæður í Sómalíu annað árið í röð í verstri stöðu. Þar er staðan svo slæm að tæplega fimmtán prósent barna lifa ekki fram að fimm ára afmælisdeginum.Staðan slæm í Bandaríkjunum Þá hafa Bandaríkin fallið niður um tvö sæti á milli ára og eru nú í 33. sæti. Í skýrslunni kemur fram að ein af hverjum 1.800 þarlendum mæðrum eigi hættu á að látast af vandkvæðum vegna meðgöngu eða fæðingar. Það er hæsta tíðni á Vesturlöndum en kona í Bandaríkjunum er tíu sinnum líklegri til að deyja við barnsburð en pólsk eða austurrísk kona, að því er fram kemur í skýrslunni. Jafnframt er bent á fjölda borga þar sem lífslíkur hafa aukist. Unnið hefur verið að því að gera heilbrigðiskerfið aðgengilegra og ódýrara fyrir fátækustu borgarfölskyldurnar. Meðal þessara borga eru Kampala í Úganda, Addis Ababa í Eþíópíu og Kaíró í Egyptalandi. Skýrslan um stöðu mæðra kom út í sextánda sinn í dag og var hún kynnt af Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur sjónvarpskonu. Hún hefur að undanförnu kynnt sér stöðu mæðra á Íslandi í þættinum Margra barna mæður sem sýndur var á Stöð 2. Samkvæmt skýrslunni er staða mæðra í borgarsamfélögum til sérstakrar skoðunar.
Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Innlent Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Sjá meira