Fjórði sigur Leicester í röð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. apríl 2015 16:10 Jamie Vardy hefur farið mikinn í undanförnum leikjum Leicester. vísir/getty
Sjö leikjum er lokið í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leicester komst upp úr fallsæti með 0-1 sigri á Burnley í nýliðaslag á Turf Moor. Þetta var fjórði sigur Refanna í röð en ekki er langt síðan nánast var búið að dæma liðið niður um deild. Jamie Vardy skoraði eina mark leiksins eftir klukkutíma en framherjinn hefur verið heitur að undanförnu og komið með beinum hætti að fimm mörkum í síðustu fimm leikjum Leicester. Mínútu áður hafði Matthew Taylor, leikmaður Burnley, brennt af vítaspyrnu. Burnley er komið í botnsæti úrvalsdeildarinnar en liðið hefur aðeins fengið eitt stig í síðustu fimm leikjum sínum. Hull vann mikilvægan 0-2 sigur á Crystal Palace á Selhurst Park. Dame N'Doye gerði bæði mörk Hull. Þetta var fyrsti sigur liðsins í deildinni síðan 21. febrúar. Tígrarnir eru nú í 16. sæti, einu stigi frá fallsæti, en Palace siglir lygnan sjó í 11. sætinu. Á Brittania Stadium gerðu Stoke og Sunderland 1-1 jafntefli en þetta var 15. jafntefli Sunderland í deildinni í vetur. Gestirnir fengu draumabyrjun þegar Connor Wickham skoraði á upphafsmínútu leiksins eftir mistök hjá Asmir Begovic, markverði Stoke. Charlie Adam jafnaði svo metin á 27. mínútu með sínu þriðja marki í síðustu fjórum leikjum. Þá gerðu QPR og West Ham markalaust jafntefli á Loftus Road.Úrslit dagsins:Southampton 2-2 TottenhamWest Brom 0-0 LiverpoolNewcastle 2-3 Swansea Stoke 1-1 Sunderland Burnley 0-1 Leicester Crystal Palace 0-2 Hull QPR 0-0 West Ham
Enski boltinn Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Fótbolti Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Körfubolti Sjáðu ótrúlega fimmu Ídu Marínar og Fram vinna meistarana Íslenski boltinn N1-mótið: Jötunn sem þambar mjólk, frábær tilþrif og orðljótir mótherjar Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira