Rooney kveikti í United-liðinu með þrumuræðu fyrir Manchester-slaginn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. apríl 2015 10:00 Wayne Rooney. Vísir/Getty
Wayne Rooney, fyrirliði Manchester United, fær hrós frá félögum sínum í liðinu fyrir ræðuna sem hann hélt í klefanum fyrir 4-2 sigur liðsins á nágrönnunum í Manchester City. Daley Blind, leikmaður Manchester United og hollenska landsliðsins, talar um þessa ræðu Rooney í viðtali við Daily Mail. „Hún hitti beint í mark. Allir voru með það á hreinu hversu mikilvægur þessi leikur var. Ekki aðeins vegna rottuhlaupsins í baráttunni um efstu sætin heldur einnig vegna þess að liðið var búið að tapa fjórum derby-leikjum í röð," sagði Daley Blind. „Wayne Rooney talaði um þetta í klefanum og það voru allir í liðinu að hugsa um þessa staðreynd þegar þeir stigu inn á grasið. Það sáu allir að við vorum að berjast fyrir hvern annan," sagði Blind. „Við gátum kannski spurt okkur sjálfa eftir fyrstu fimm mínúturnar: Hvað gerðist? En eftir að við fengum á okkur mark þá komumst við í gang og spiluðum vel. Það var magnað að hafa stuðningsmennina með okkur," sagði Blind. City komst í 1-0 í upphafi en United svaraði með fjórum mörkum áður en City-liðið skoraði lokamark leiksins. Blind segir að liðið hafi alla burði til þess að vinna ensku deildina á næsta ári en það sem skiptir öllu máli er að tryggja sig inn í Meistaradeildina. Næsti leikur Manchester United er síðan á móti toppliði Chelsea um næstu helgi.
Enski boltinn Mest lesið Mun aldrei jafna sig á tapinu gegn Íslandi á EM: „Var mér mjög erfitt“ Fótbolti Albert svarar fyrir sig: Með skýr skilaboð til mannsins sem reif treyju hans Fótbolti McGregor mætti óvænt og barðist í Dublin Sport Goðsögn hleður Guðjón Val og Gummersbach lofi Handbolti Algjör ringulreið: Leik frestað hjá Alfons og Stefáni eftir ótrúlega uppákomu Fótbolti Nike semur við Baldvin: „Get nú kallað áhugamálið mitt vinnuna mína“ Sport Fá City eftir að hafa slegið Arsenal út Enski boltinn Leik hætt hjá Arnóri um stundarsakir vegna slagsmála Fótbolti Neyðist til að hætta eftir margra mánaða greiningarferli Fótbolti Sérfræðingarnir svara: Hverjir valda mestum vonbrigðum í sumar? Íslenski boltinn Fleiri fréttir Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Hetja Leeds: „Þetta eru töfrar bikarsins“ Fá City eftir að hafa slegið Arsenal út Leeds í undanúrslit í fyrsta sinn í 39 ár eftir ótrúlega dramatík Skytturnar úr leik: Dýrlingarnir sýndu Arsenal enga miskunn Chelsea flaug áfram í undanúrslit Szoboszlai svekktur: „Hugarfarið var ekki nógu gott“ Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Mo Salah fékk ráð frá Steven Gerrard Isak gæti spilað á móti Man City um helgina og Salah er heill Enzo Fernandez verður í agabanni í næstu tveimur leikjum Chelsea Vill vera lengi hjá „stórliðinu“ Tottenham Hraunar yfir Enzo: „Farðu í burtu“ Manchester United ferðast um Norðurlöndin í sumar Isak fær að æfa með liðsfélögunum aftur Onana fær mun hærri laun ef Man. United kemst í Meistaradeildina Chelsea setti nýtt met í taprekstri Nýr stjóri Tottenham ekki velkominn hjá stuðningsmönnunum De Zerbi tekinn við Tottenham Heimsmeistara býðst að aðstoða De Zerbi Starf Howe í hættu De Zerbi opinn fyrir því að taka strax við Tottenham Þrír af hverjum fjórum stuðningsmönnum ósáttir við VAR Biðja knattspyrnukonur afsökunar Enska landsliðskonan missti fóstur Tottenham sagt vilja fá De Zerbi sem nýjan stjóra Arsenal-stjörnurnar yfirgefa landslið sín hver á fætur öðrum Tudor hættir störfum hjá Tottenham Yfirmaður hjá Bayern hæðist að Liverpool Sjá meira