Hazard skaut Chelsea skrefi nær Englandsmeistaratitlinum | Sjáðu markið Anton Ingi Leifsson skrifar 18. apríl 2015 18:15 Úr leiknum í dag. vísir/getty
Chelsea er skrefi nær Englandsmeistaratitlinum eftir 1-0 sigur á Manchester United í stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Eden Hazard skoraði eina markið í fyrri hálfleik. Fyrri hálfleikurinn var ekki mikið fyrir augað. United var meira með boltann, en ekki náðu gestirnir að skapa sér gífurlega mörg færi. Rooney fékk eitt gott, en skaut boltanum rétt framhjá. Þegar sjö mínútur voru í hálfleik kom eina mark leiksins. Eftir laglegt samspil gaf Oscar frábæra hælsendingu á Eden Hazard sem óð inn á teiginn og lagði boltann milli fóta David de Gea. 1-0 í hálfleik. Í síðari hálfleik sóttu gestirnir án afláts. Þeir voru á tímapunkti 71% með boltann, en ekki náðu þeir að skapa sér mörg færi. Chelsea lá til baka og beitti hröðum skyndisóknum. Heimamenn fengu þó sín færi sem og gestirnir. Oscar setti boltann í stöngina og á 77. mínútu skaut kólumbíski framherji United, Radamel Falcao, í utanverða stöngina á marki Chelsea. Ekki urðu mörkin fleiri og lokatölur 1-0 sigur Chelsea. Belginn Eden Hazard enn og aftur hetjan, en hann er líklegur til að hreppa hnossið; leikmaður ársins í Englandi. Chelsea er með tíu stiga forskot á Arsenal eftir leik dagsins. United er í þriðja sætinu með 65 stig, fjórum á undan City sem er í fjórða en á þó leik til góða. United hafði unnið sex leiki í röð.Chelsea - Manchester United 1-0:
Enski boltinn Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Körfubolti Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Fótbolti N1-mótið: Jötunn sem þambar mjólk, frábær tilþrif og orðljótir mótherjar Fótbolti Sjáðu ótrúlega fimmu Ídu Marínar og Fram vinna meistarana Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira