Herrera með tvö í fimmta sigri United í röð | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. apríl 2015 00:01 Rooney skorar annað mark United. Vísir/Getty
Manchester United vann sinn fimmta sigur í röð þegar liðið lagði Aston Villa að velli á Old Trafford, 3-1. Með sigrinum komst United upp fyrir erkifjendur sína í Manchester City í 3. sæti deildarinnar. Lærisveinar Louis van Gaal eru nú með 62 stig, átta stigum meira en Liverpool í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu. United var 77% með boltann í leik dagsins en náði ekki að brjóta ísinn fyrr en á 43. mínútu þegar Ander Herrera skoraði sitt sjötta mark í vetur með skoti úr vítateignum. Wayne Rooney tvöfaldaði forystu United með glæsilegu marki á 79. mínútu. Varamaðurinn Ángel Di María átti þá fyrirgjöf frá vinstri inn á teiginn á Rooney sem tók vel við boltanum og skoraði svo með frábæru skoti á lofti. Þetta var 12. deildarmark Rooney í vetur. Christian Benteke minnkaði muninn í 2-1 mínútu síðar með skoti eftir hornspyrnu sem David De Gea hefði átt að verja. Herrera slökkti svo vonarneista gestanna þegar hann skoraði sitt annað mark í uppbótartíma eftir sendingu frá Juan Mata. Þrjú stig í höfn hjá United og Meistaradeildarsætið er innan seilingar hjá liðinu.Man Utd 1-0 Aston Villa Man Utd 2-0 Aston Villa Man Utd 2-1 Aston Villa Man Utd 3-1 Aston Villa
Enski boltinn Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Fleiri fréttir Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjá meira