Rodgers: Kerfið er ekkert að klikka - við erum bara ekki að spila nógu vel Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. apríl 2015 08:30 Brendan Rodgers þarf á sigri að halda í kvöld. vísir/getty
Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, segir síðustu töp í deildinni ekki því um að kenna að önnur lið hafi fundið leið framhjá leikkerfi Liverpool-manna. Eftir að Brendan Rodgers skipti í 3-4-2-1 um miðjan desember tapaði liðið ekki í 13 leikjum í röð í ensku úrvalsdeildinni, en sú hrina kom liðinu aftur í baráttuna um Meistaradeildarsæti. Liðið hefur aðeins hikstað í síðustu leikjum, en það tapaði fyrir Manchester United á Anfield og fékk svo skell um helgina gegn Arsenal, 4-1. „Þetta snýst ekkert um að kerfið sé að klikka. Við bara byrjuðum ekki nógu vel á móti Arsenal og það skiptir engu máli hvaða kerfi þú ert að spila þegar það gerist,“ sagði Rodgers á blaðamannafundi fyrir bikarleik liðsins gegn Blackburn í kvöld. „Í síðustu fjórum leikjum höfum við ekki skapað okkur nóg af færum. Það er bara okkur sjálfum að kenna.“ B-deildarlið Blackburn náði markalausu jafntefli á Anfield í átta liða úrslitum bikarsins og endurtekinn leikur liðanna fer fram á Ewood Park í kvöld. „Við höfum ekki skapað nóg af færum síðan við mættum Blackburn. Það er eitthvað sem við þurfum að laga. Við þurfum að skapa okkur færi og nýta þau,“ sagði Rodgers. „Þetta er erfitt kerfi að spila á móti, en þetta er samt bara eitt af þeim kerfum sem við höfum notað og spilað það mjög vel,“ sagði Brendan Rodgers.Leikur Blackburn og Liverpool er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD klukkan 18.40 í kvöld.
Enski boltinn Mest lesið Viktor Gísli fær treyju númer eitt hjá Barcelona Handbolti Njarðvík með fjögurra stiga forskot á toppnum Íslenski boltinn Guðmundur í grænt Íslenski boltinn Calvert-Lewin á leið til Leeds Enski boltinn Willum lagði upp sigurmark Birmingham Enski boltinn PSG kom til baka og vann Ofurbikarinn í vítakeppni Fótbolti Jón Daði skoraði fyrsta markið fyrir Selfoss í þrettán ár og Fylkir á botninum Íslenski boltinn Donnarumma sagður á leið til City í sögulegum skiptum Fótbolti Vill þjóðina upp á dekk: „Langt síðan við höfum átt alvöru heimavöll“ Fótbolti Mótherjarnir afsaka sig fyrir fram: „Hvort sem það er leikrit eða ekki“ Fótbolti Fleiri fréttir Calvert-Lewin á leið til Leeds Willum lagði upp sigurmark Birmingham Jason Daði og félagar fá Rauðu djöflana í heimsókn Enska augnablikið: Hugsaði til van Persie eftir frægt mark í Eyjum Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Grealish valdi númerið sitt vegna Rooney og Gascoigne „Fáránleg staða sem er komin upp“ Stuðningsmenn Chelsea bjartsýnastir en mjög svartsýnir hjá Newcastle Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Vildi hvergi annarsstaðar spila Dýrasti leikmaður í sögu City lánaður til Everton Enska augnablikið: Forsjáli félaginn sem missti af öllu Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Coote dæmdur í átta vikna bann fyrir ummælin um Klopp Enska augnablikið: Sá allra svalasti „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Bale af golfvellinum og á skjáinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn Donnarumma skilinn eftir heima Enska augnablikið: Hlaupið út úr húsinu Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Newcastle loks að fá leikmann Delap með tvö í öruggum sigri í síðasta leik fyrir mót Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Sjá meira