Enski boltinn

Mata og Gerrard í aðalhlutverkum í sigri United | Sjáið mörkin og rauða spjaldið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Juan Mata fagnar fyrra marki sínu.
Juan Mata fagnar fyrra marki sínu. Vísir/AFP
Manchester United bar sigurorð af Liverpool, 1-2, í stórleik helgarinanr í ensku úrvalsdeildinni. Þetta var fyrsta tap Liverpool í deildinni á þessu ári en United er nú með fimm stiga forskot á Rauða herinn í 4. sæti deildarinnar.

United komst yfir á 14. mínútu þegar Mata skoraði eftir sendingu frá landa sínum, Ander Herrera. Fátt markvert gerðist annars í fyrri hálfleik ef frá talið gott færi sem Adam Lallana fékk 10 mínútum fyrir hálfleik.

Lallana fór af velli í hálfleik og í hans stað kom Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool. Innkoma hans var ótrúlegri kantinum en innan við mínútu eftir að Gerrard kom inn á fékk hann að líta rauða spjaldið hjá Martin Atkinson, dómara leiksins.

 

Gerrard byrjaði á því tækla Juan Mata, markaskorara Manchester United, 15 sekúndum eftir að hann kom inn á. Nokkrum andartökum síðar tæklaði Ander Herrera Gerrard sem brást illa við og traðkaði á legg Spánverjans.

Fyrir það fékk hann að líta rauða spjaldið í síðasta leik sínum með Liverpool gegn Manchester United. Ótrúleg atburðarrás og ótrúleg innkoma hjá þessari miklu Liverpool-goðsögn.

Martin Atkinson sýnir Gerrard rauða spjaldið.vísir/afp
Á 58. mínútu tvöfaldaði Mata forystu United með sínu öðru marki sem var stórglæsilegt. Ángel di María vippaði boltanum inn á vítateiginn á Mata sem klippti boltann glæsilega á lofti framhjá Simon Mignolet í marki Liverpool.

Liverpool-menn sóttu í sig veðrið eftir þetta og á 69. mínútu minnkaði Daniel Sturridge muninn í 1-2 með skoti hægra megin úr vítateignum eftir sendingu frá Philippe Coutinho.

Heimamenn sóttu stíft það sem eftir lifði leiks en vörn gestanna hélt. United fékk kjörið tækifæri til að gulltryggja sigurinn í uppbótartíma en Mignolet varði slaka vítaspyrnu Wayne Rooney.

Fleiri urðu mörkin ekki og United fagnaði sínum fjórða deildarsigri í röð. Lærisveinar Louis van Gaal eru nú með 59 stig í 4. sæti deildarinnar, fimm stigum á undan Liverpool sem er í 5. sæti.

Juan Mata kemur United í 1-0 Steven Gerrard fær að líta rauða spjaldið Mata kemur United í 0-2 með stórkostlegu marki Sturridge minnkar muninn í 1-2 Mignolet ver vítaspyrnu Rooney



Fleiri fréttir

Sjá meira


×