Hjörvar Hafliða: Tölfræðin er eins og stutt pils Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. febrúar 2015 11:00 Ángel di María hefur ekki verið upp á sitt besta undanfarið. vísir/getty
Ángel di María skoraði hvorki né lagði upp mark þegar Manchester United gerði 1-1 jafntefli við West Ham í lokaleik 24. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í gær. Argentínumaðurinn, sem kostaði United tæpar 60 milljónir punda, hefur nú ekki skorað né lagt upp mark (samkvæmt opinberri tölfræði) á nýju ári.Sjá einnig:Manchester United náði stigi á Boleyn Ground | Sjáið mörkin Síðast skoraði Di María og lagði upp í sama leiknum gegn Everton 5. október á síðasta ári í deildinni. Eina stoðsending hans síðan þá kom í bikarleik gegn Yeovil 4. janúar. „Menn sem bjuggust við hrúgu af mörkum frá Di María hafa greinilega ekkert kynnt sér feril hans. Hann spilaði með Real Madrid sem heldur boltanum 70 prósent í hverjum leik en skoraði bara fjögur mörk á síðasta tímabili,“ segir Hjörvar Hafliðason, sparkspekingur Stöðvar 2 Sports við Vísi.Here's Angel Di Maria's form in 2015. Is he being played in the right position? #SSNHQpic.twitter.com/TAz1CeQypF — Sky Sports News HQ (@SkySportsNewsHQ) February 9, 2015Sky Sports veltir upp tölfræði Argentínumannsins í dag og spyr hvort það sé verið að spila honum út úr stöðu hjá Manchester United. „Van Gaal er enn í vandræðum með að púsla þessu saman. Það eru margir sem vilja spila sömu stöðuna hjá United eins og Mata, Rooney og Di María. Di María naut sín í 4-3-3 hjá Real Madrid en það er búið að henda honum út um allan völl hjá United til að reyna að láta hann virka,“ segir Hjörvar. „Hann hefur nú yfirleitt lagt upp mörk samt sem áður en stundum er hættulegt að horfa bara hrátt í tölfræðina. Þeir sem horfa bara á hana halda að Danny Welbeck hafi ekkert gert á móti Tottenham en hann átti fyrsta mark Arsenal.“ „Markið sem Falcao skoraði á móti Leicester kom líka eftir upphlaup og skot Di María en tölfræði segir ekkert til um það. Tölfræði er eins og stutt pils: Það sýnir eitthvað smá en ekki það sem skiptir máli,“ segir Hjörvar Hafliðason. Hjörvar verður í sviðsljósinu í Messunni í kvöld þar sem 24. umferðin verður gerð upp á Stöð 2 Sport 2 klukkan 21.00.
Enski boltinn Tengdar fréttir Leikmenn Manchester United eru að leika upp á framtíðina Louis van Gaal knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Manchester United hefur komið leikmönnum sínum í skilning um það að þeir séu að leika upp á framtíð sína hjá félaginu. 8. febrúar 2015 14:45 Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Stjarnan játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið Fótbolti Allt teymi Heimis framlengir Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Sjá meira
Leikmenn Manchester United eru að leika upp á framtíðina Louis van Gaal knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Manchester United hefur komið leikmönnum sínum í skilning um það að þeir séu að leika upp á framtíð sína hjá félaginu. 8. febrúar 2015 14:45
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn