Erlent

Slagsmál og stólum kastað í nepalska þinginu

Atli Ísleifsson skrifar
Þingmenn stjórnarandstöðunnar eru ekki ánægðir með nýju stjórnarskrárdrögin.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar eru ekki ánægðir með nýju stjórnarskrárdrögin. Vísir/AFP
Slagsmál brutust út í nepalska þinginu fyrr í dag þegar þingmenn voru að ræða drög að nýrri stjórnarskrá landsins. Þingmenn stjórnarandstöðunnar köstuðu stólum og réðust í átt að forseta þingsins í umræðunum fyrr í morgun. Þingforseti frestaði fundi í miðjum klíðum.

Verkfall sem leiðtogar stjórnarandstöðunnar hvöttu til hafa lamað nepalskt samfélag í dag þar sem hefur þurft að loka skólum og verslunum, auk þess sem almenningssamgöngur hafa verið í lamasessi.

Sjá má slagsmálin í þinginu í myndbandinu að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×