United tókst ekki að vinna fyrsta leik ársins | Sjáið mörkin Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. janúar 2015 12:15 Ryan Shawcross fagnar marki sínu. Vísir/Getty
Stoke City og Manchester United gerðu 1-1 jafntefli í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar á nýju ári en liðin mættust á Britannia Stadium í fyrsta leik dagsins af tíu. Stoke fékk sannkallaða draumabyrjun þegar fyrirliðinn Ryan Shawcross skoraði eftir 106 sekúndur en Kólumbíumaðurinn Radamel Falcao jafnaði metin í fyrri hálfleik og þannig urðu lokatölurnar. Þetta var annar jafnteflisleikur Manchester United í röð í ensku úrvalsdeildinni (0-0 á móti Tottenham) og sá þriðji í röð á útivelli en liðið hefur nú leikið tíu deildarleiki í röð án þess að tapa. Manchester United var miklu meira með boltann í leiknum en Stoke tókst engu að síðustu að skapa sér fín færi til að skora fleiri mörk og Marko Arnautovic átti meðal annars stangarskot í seinni hálfleiknum. Bæði mörk leiksins komu eftir föst leikatriði. Ryan Shawcross skoraði fyrra mark leiksins úr markteignum á 2. mínútu eftir skalla Peter Crouch. og horn Arnautovic. Radamel Falcao jafnaði metin á 26. mínútu eftir að Michael Carrick framlengdi hornspyrnu Wayne Rooney til hans. Þetta voru líklega sanngjörn úrslit en leikmenn liðanna þurftu að glíma við mikinn vind sem gerði þeim greinilega erfitt fyrir á Britannia-leikvanginum.Ryan Shawcross kom Stoke yfir eftir aðeins 106 sekúndur: Radamel Falcao jafnaði leikinn eftir 26 mínútna leik.
Enski boltinn Mest lesið „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Enski boltinn „Dóri verður að hætta þessu væli“ Íslenski boltinn „Óreyndir dómarar sem falla í þessa gryfju“ Íslenski boltinn Ronaldo trúlofaður Fótbolti Toppurinn á ferlinum hingað til en getur gert betur Sport Bað um að grátandi krakka yrði vísað af vellinum Sport Heimir og Dean sendir í sturtu eftir læti á hliðarlínunni Íslenski boltinn Ingibjörg seld til Freiburg Fótbolti Gunnlaugur byrjar vel á móti þar sem til mikils er að vinna Golf Enska augnablikið: Sá allra svalasti Enski boltinn Fleiri fréttir Coote dæmdur í átta vikna bann fyrir ummælin um Klopp Enska augnablikið: Sá allra svalasti „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Bale af golfvellinum og á skjáinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn Donnarumma skilinn eftir heima Enska augnablikið: Hlaupið út úr húsinu Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Newcastle loks að fá leikmann Delap með tvö í öruggum sigri í síðasta leik fyrir mót Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Enska augnablikið: Hjátrú og alsæla Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Nunez farinn frá Liverpool De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Gyökeres byrjaður að skora fyrir Arsenal Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Gerrard: Owen var betri sem táningur en Yamal og Mbappé Albert lagði upp á Old Trafford í síðasta leik United fyrir tímabilið Draumabyrjun Wrexham breyttist í martröð í lokin Isak verður áfram í frystikistunni í fyrsta leik Newcastle Meiðsli Rodri verri en menn héldu Manchester United staðfestir kaupin á Sesko Enska augnablikið: Grætti barnið en var slétt sama Sonur Rooney á hraðri uppleið hjá Man. United Sjá meira