Tottenham skoraði fimm mörk hjá Chelsea - Kane frábær | Sjáið mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. janúar 2015 12:46 Harry Kane kom öllu að stað hjá Tottenham. Vísir/Getty
Harry Kane fór fyrir flugeldasýningu Tottenham í 5-3 sigri á toppliði Chelsea í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni en þessi úrslit þýða að Chelsea og Manchester City eru með jafnmörg stig og sömu markatölu á toppi deildarinnar. Harry Kane skoraði tvö frábær mörk í leiknum og var síðan maðurinn á bak við tvö önnur með því að fiska víti og gefa stoðsendingu. Tottenham-liðið komst upp fyrir nágranna sína í Arsenal og er nú í fimmta sætinu, tveimur stigum á eftir Southampton. Chelsea skoraði fyrsta mark leiksins en Tottenham komst síðan bæði í 4-1 og 5-2. Þau úrslit hefðu þýtt að Chelsea dytti úr toppsætinu en mark John Terry undir lok leiksins sá til þess að City og Chelsea eru algjörlega jöfn á toppnum. Diego Costa kom Tottenham í 1-0 á 18. mínútu en Tottenham skoraði þrjú mörk á síðustu fimmtán mínútum fyrri hálfleiks og var því 3-1 yfir í hálfleik. Harry Kane kom öllu af stað með því að jafna metin með frábæru skoti en hin mörkin skoruðu þeir Danny Rose og Andros Townsend úr víti sem Harry Kane fiskaði. Harry Kane skoraði fjórða mark Tottenham á 52. mínútu eftir lagleg tilþrif og Kane lagði síðan upp fimmta markið fyrir Nacer Chadli en í millitíðinni hafði Edin Hazard minnkað muninn. John Terry skoraði síðan áttunda og síðasta mark leiksins á 87. mínútu þegar hann skoraði eftir sendingu frá Branislav Ivanovic. Hér fyrir neðan má sjá mörk leiksins.Diego Costa kemur Chelsea í 1-0 Harry Kane jafnar með frábæru skoti Danny Rose kemur Tottenham í 2-1. Andros Townsend skorar úr víti og kemur Tottenham í 3-1. Harry Kane skorar fjórða mark Tottenham Hazard minnkar muninn fyrir Chelsea Nacer Chadli með fimmta mark Tottenham John Terry með áttunda mark leiksins
Enski boltinn Mest lesið Var rekinn en hefndi sín: „Hefði verið búið að berja hann í spað“ Körfubolti Dramatískt flautumark tryggði Liverpool mikilvægan sigur Enski boltinn „Mín mistök að hafa ekki komið Bjögga betur inn í mótið“ Handbolti Búin í aðgerð og ber sig vel eftir að hafa fengið skauta í augað Sport Kokteilar á línuna: Guardiola vill að sínir menn drekki vel og njóti Enski boltinn Missti tilfinninguna í fingrunum eftir bræðiskastið á HM Sport Furðufréttir Vetrarólympíuleikanna: Framhjáhald, stóra typpamálið og skemmdar medalíur Sport Mörkin úr enska boltanum: Eitt flottasta mark tímabilsins, dramatík og dýrmætur sigur City Enski boltinn Slær niður veggi í HSÍ eftir viðburðaríkan fyrsta mánuð í starfi Handbolti Tottenham - Arsenal | Nýi stjórinn fær særða granna í stórleik Enski boltinn Fleiri fréttir Fagnaði fyrir framan sótilla stuðningsmenn Dramatískt flautumark tryggði Liverpool mikilvægan sigur Tottenham - Arsenal | Nýi stjórinn fær særða granna í stórleik Kokteilar á línuna: Guardiola vill að sínir menn drekki vel og njóti Mörkin úr enska boltanum: Eitt flottasta mark tímabilsins, dramatík og dýrmætur sigur City O'Reilly með tvennu og City andar ofan í hálsmál Arsenal Bournemouth nálgast Evrópusætin Chelsea fór illa að ráði sínu gegn Burnley Milner orðinn sá leikjahæsti í sögu ensku úrvalsdeildarinnar „Mér gæti ekki verið meira sama um stöðuna í ensku úrvalsdeildinni“ Segir að sænska ríkisstjórnin megi ekki verða eins og Spurs Rooney vill halda Guardiola hjá City „Mér býður við þessu, satt best að segja“ „Þegar ég lít til baka veit ég ekki hvað ég var að hugsa“ Slot býst við Isak í mars og vonast eftir „bestu útgáfunni“ af honum Sjáðu Arsenal renna á rassinn gegn Úlfunum „Mjög erfitt að sætta sig við þetta“ „Okkur var refsað fyrir það“ Arsenal missti niður tveggja marka forskot í jafntefli við botnliðið Saka verður sá launahæsti Salah og trúfélagar fá drykkjarhlé í miðjum leikjum Mikel Arteta óttast að tímabil Arsenal stefni í kunnuglega átt Lærisveinar Lampard höfðu betur í toppslagnum Chelsea og Manchester United hafi spurst fyrir um Klopp Hákon hélt hreinu er Brentford sló út spútnik liðið Dregið í enska bikarnum: Chelsea heimsækir Hollywood lið Wrexham Heldur ævintýri Rooney og lærisveina hans í Macclesfield áfram í kvöld? Kemur til varnar liðsfélaga sínum hjá Liverpool Tók Arsenal bara korter að tæta Wigan í sig Úrvalsdeildarliðin áfram í 16-liða úrslit Sjá meira
Mörkin úr enska boltanum: Eitt flottasta mark tímabilsins, dramatík og dýrmætur sigur City Enski boltinn
Mörkin úr enska boltanum: Eitt flottasta mark tímabilsins, dramatík og dýrmætur sigur City Enski boltinn