Mourinho í fjölmiðla-fýlu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. janúar 2015 10:00 Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea. Vísir/Getty
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, virðist vera kominn í fjölmiðlaverkfall vegna þess hversu ósáttur hann er við kæru sem hann fékk á sig frá enska knattspyrnusambandinu. Mourinho mótmælir ákærunni með því að skrópa á blaðamannafund í dag þar sem knattspyrnustjórinn átti að ræða leik Chelsea á móti Newcastle í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Margir hefðu viljað heyra í Mourinho fyrir Newcastle-leikinn enda var Newcastle fyrr í vetur fyrsta liðið til að vinna Chelsea á tímabilinu. Mourinho er hinsvegar kominn í fjölmiðla-fýlu og kennir aganefnd enska knattspyrnusambandsins um. Aganefnd enska knattspyrnusambandsins var ósátt við þá yfirlýsingu Jose Mourinho að það væri herferð, „campaign", í gangi gegn Chelsea-liðinu. Mourinho talaði um herferðina gegn sér og sínum eftir jafnteflisleik á móti Southampton en hann var mjög reiður út í þá ákvörðun að gefa Cesc Fabregas gula spjaldið fyrir leikaraskap í stað þess að dæma augljósa vítaspyrnu. Chelsea er í efsta sæti deildarinnar ásamt Manchester City en liðin eru með jafnmörg stig (46) og nákvæmlega sömu markatölu (44-19). City mætir Everton á útivelli á sama tíma og Chelsea tekur á móti Newcastle United.
Enski boltinn Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira