Nauðgari kennir fórnarlambinu um Samúel Karl Ólason skrifar 2. mars 2015 14:37 Nauðgunin í strætisvagninum vakti hörð viðbrögð og voru mótmæli haldin víða um Indland Vísir/AFP
Mukesh Sing, sem hefur verið dæmdur til dauða fyrir þátttöku sína í grimmilegri hópnauðgun á 23 ára konu í Indlandi 2012, segir konur bera ábyrgð á nauðgunum. Þetta kemur fram í viðtali sem BBC tók við hann í fangelsi. Viðtalið við Mukesh Singh er hluti af heimildarmyndinni Dóttir Indlands sem BBC mun sýna um næstu helgi. Árásin leiddi til gífurlegra mótmæla í Indlandi og víðar í heiminum, þar sem farið var fram á breytt viðhorf gagnvart konum í Indlandi. Mennirnir voru allir dæmdir til dauða. Hinni 23 ára gömlu Jyoti Singh var nauðgað margoft og var hún barin með járnrörum, áður en henni og vini hennar var kastað úr strætisvagni á ferð. Hún lét lífið 13 dögum síðar. Þann 16. desember var Joyti á leið heim úr kvikmyndahúsi ásamt vini sínum, þegar fimm menn, ásamt 17 ára dreng, á strætisvagni buðu þeim far heim. Vinur Joyti var barinn illilega og mennirnir drógu hana aftast í vagninn þar sem þeir nauðguðu henni og börðu hana grimmilega.Fjórir af fimm dæmdir til dauða Mukesh Sing hefur viðurkennt að hafa keyrt strætisvagninn, en segist ekki hafa nauðgað Joyti. Hann og hinir mennirnir fjórir voru dæmdir til dauða fyrir árásina. Mál fjögurra þeirra eru nú í áfrýjunarferli, en einn af þeim fannst látinn í klefa sínum í mars 2013. Hann var bróðir Mukesh. Drengurinn var dæmdur fyrir nauðgun og morð og var gert að sitja í þrjú ár í endurhæfingarvistun. Mukesh segir í viðtalinu að konur beri meiri ábyrgð á nauðgunum en karlmenn. Þær eigi ekki að vera á ferðinni seint á kvöldin, né eigi þær að sækja skemmtistaði eða vera í „röngum“ fötum. „Sæmandi stúlka er ekki á ferðinni klukkan níu á kvöldin. Stelpan ber mun meiri ábyrgð á nauðgun en strákurinn. Strákur og stelpur eru ekki jöfn. Heimilisstörf eru fyrir stelpur, þær eiga ekki að sækja diskó og bari á kvöldin og gera ranga hluti, vera í röngum fötum. Um 20 prósent stúlkna eru góðar.“Segir árásina hafa verið slys Mukesh vísar ávallt til nauðgunarinnar sem slyss í viðtalinu en hann segir nauðgunina og barsmíðarnar hafa verið til að kenna þeim Joyti og vini hennar lexíu. Að þau hefðu ekki átt að vera úti svona seint. Þá gagnrýnir hann Joyti fyrir að hafa veitt þeim mótspyrnu. „Hún hefði ekki átt að veita mótþróa þegar það var verið að nauðga henni. Hún hefði bara átt að vera kyrr og leyfa þessu að gerast. Þá hefðu þeir hleypt henni út eftir á og bara barið strákinn.“ Hluta af viðtalinu við Mukesh má sjá hér á vef BBC. Hann heldur því einnig fram að verði hann og samfangar hans teknir af lífi muni það koma niður á fórnarlömbum nauðgunna í Indlandi. „Núna, þegar þeir nauðga, munu þeir ekki skilja stúlkurnar eftir eins og við gerðum. Þeir munu drepa þær. Áður hefðu þeir nauðgað þeim og sagt: Skiljið hana eftir, hún mun ekki segja frá þessu. Núna munu þeir og þá sérstaklega glæpamennirnir, bara drepa stelpurnar. Dauði.“
Tengdar fréttir Indversku hrottarnir mættu í dómsal í morgun Mennirnir fimm, sem grunaðir eru um að hafa nauðgað og misþyrmt tuttugu og þriggja ára konu um borð í strætisvagni í Nýju-Delí á Indlandi um miðjan síðasta mánuð, mættu nú á ellefta tímanum fyrir dómara í höfuðborginni. 7. janúar 2013 10:57 Einn hópnauðgarinn undir aldri - fær þrjú ár í versta falli Indverskir dómstólar hafa úrskurðað að einn af karlmönnunum, sem eru ákærðir fyrir að hópnauðga og myrða 23 ára stúdent á Indlandi, sé undir lögaldri og verður því réttað yfir honum sem unglingi. 28. janúar 2013 21:28 Treysta ekki lögreglunni eftir hrottalega nauðgun Hundruð kvenna í Delhi hafa síðastliðna daga sótt um byssuleyfi. Ástæðan er mikil umfjöllun um hrottalega nauðgun, þar sem sex karlmenn nauðguðu 23 ára gamalli konu og limlestu hana í síðasta mánuði. Breska blaðið Guardian segir að fréttirnar af þessum aukna byssuáhuga sýni hversu óöruggt fólk sé í þessari borg. Skortur á trausti gagnvart lögreglunni sé alger. 1. janúar 2013 20:40 Rannsaka nauðgun á sjö ára stúlku Málið hefur vakið óhug og varð kveikjan að mótmælum í gær. 2. mars 2013 18:15 Verða hengdir fyrir nauðgun og morð í strætisvagni Hæstiréttur á Indlandi hefur staðfest dauðadóm yfir fjórum karlmönnum sem sakfelldir voru fyrir nauðgun og morð á ungri konu í Nýju-Delí í desember 2012. 13. mars 2014 15:06 Lífstíðarfangelsi fyrir hópnauðgun Sex karlmenn nauðguðu ferðakonu frá Sviss. 20. júlí 2013 17:22 Sakfelldir fyrir hrottalega nauðgun Fjórir menn eiga yfir sér dauðarefsingu á Indlandi. Þeir voru sakfelldir í morgun fyrir hópnauðgun í lok síðasta árs. 10. september 2013 19:43 Konan lýsti árásinni áður en hún lést - lögreglan vill dauðarefsingu yfir hrottunum Lögreglan í höfuðborg Indlands, Nýju-Delí, hefur ákært sex menn fyrir að hafa nauðgðað og myrt tuttugu og þriggja ára konu í strætisvagni í borginni um miðjan desember. Dómari tekur málið fyrir í dag en mennirnir sex munu ekki mæta sjálfir fyrir dómara af öryggisástæðum. 3. janúar 2013 10:46 Blóð úr konunni fannst á fötum hrottanna DNA-sýni sem fundust á fötum indversku mannanna fimm, sem eru í haldi lögreglu grunaðir um hrottafengna nauðgun og morð um borð í strætisvagni í síðasta mánuði, tengja þá við verknaðinn. 5. janúar 2013 16:18 Kennir parinu að nokkru um árásina Sex menn voru handteknir á sunnudag í Madya Pradesh á Indlandi, sakaðir um að hafa ráðist á par frá Sviss, bundið manninn við tré og nauðgað konunni. 19. mars 2013 07:00 Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sjá meira
Indversku hrottarnir mættu í dómsal í morgun Mennirnir fimm, sem grunaðir eru um að hafa nauðgað og misþyrmt tuttugu og þriggja ára konu um borð í strætisvagni í Nýju-Delí á Indlandi um miðjan síðasta mánuð, mættu nú á ellefta tímanum fyrir dómara í höfuðborginni. 7. janúar 2013 10:57
Einn hópnauðgarinn undir aldri - fær þrjú ár í versta falli Indverskir dómstólar hafa úrskurðað að einn af karlmönnunum, sem eru ákærðir fyrir að hópnauðga og myrða 23 ára stúdent á Indlandi, sé undir lögaldri og verður því réttað yfir honum sem unglingi. 28. janúar 2013 21:28
Treysta ekki lögreglunni eftir hrottalega nauðgun Hundruð kvenna í Delhi hafa síðastliðna daga sótt um byssuleyfi. Ástæðan er mikil umfjöllun um hrottalega nauðgun, þar sem sex karlmenn nauðguðu 23 ára gamalli konu og limlestu hana í síðasta mánuði. Breska blaðið Guardian segir að fréttirnar af þessum aukna byssuáhuga sýni hversu óöruggt fólk sé í þessari borg. Skortur á trausti gagnvart lögreglunni sé alger. 1. janúar 2013 20:40
Rannsaka nauðgun á sjö ára stúlku Málið hefur vakið óhug og varð kveikjan að mótmælum í gær. 2. mars 2013 18:15
Verða hengdir fyrir nauðgun og morð í strætisvagni Hæstiréttur á Indlandi hefur staðfest dauðadóm yfir fjórum karlmönnum sem sakfelldir voru fyrir nauðgun og morð á ungri konu í Nýju-Delí í desember 2012. 13. mars 2014 15:06
Sakfelldir fyrir hrottalega nauðgun Fjórir menn eiga yfir sér dauðarefsingu á Indlandi. Þeir voru sakfelldir í morgun fyrir hópnauðgun í lok síðasta árs. 10. september 2013 19:43
Konan lýsti árásinni áður en hún lést - lögreglan vill dauðarefsingu yfir hrottunum Lögreglan í höfuðborg Indlands, Nýju-Delí, hefur ákært sex menn fyrir að hafa nauðgðað og myrt tuttugu og þriggja ára konu í strætisvagni í borginni um miðjan desember. Dómari tekur málið fyrir í dag en mennirnir sex munu ekki mæta sjálfir fyrir dómara af öryggisástæðum. 3. janúar 2013 10:46
Blóð úr konunni fannst á fötum hrottanna DNA-sýni sem fundust á fötum indversku mannanna fimm, sem eru í haldi lögreglu grunaðir um hrottafengna nauðgun og morð um borð í strætisvagni í síðasta mánuði, tengja þá við verknaðinn. 5. janúar 2013 16:18
Kennir parinu að nokkru um árásina Sex menn voru handteknir á sunnudag í Madya Pradesh á Indlandi, sakaðir um að hafa ráðist á par frá Sviss, bundið manninn við tré og nauðgað konunni. 19. mars 2013 07:00