Erlent

Rannsaka nauðgun á sjö ára stúlku

Frá mótmælum í Delí.
Frá mótmælum í Delí. Mynd/AP
Lögreglan í Delí á Indlandi rannsakar nú nauðgun á sjö ára stúlku í borginni, en málið hefur vakið óhug og varð kveikjan að mótmælum í gær.

Mótmælendurnir létu grjóti rigna yfir strætisvagn og mölbrutu allar rúður á meðan lögreglan reyndi að hafa hemil á þeim.

Enginn hefur enn verið handtekinn vegna nauðgunarmálsins en kynferðisárásir eru tíðar á Indlandi, en segja má að vitundarvakning hafi orðið í þeim málum að undanförnu, og mótmæli haldin nokkuð reglulega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×