Monk: Næst gef ég Gylfa köku Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. nóvember 2015 09:35 Gylfi Þór Sigurðsson og Garry Monk. Vísir/Samsett mynd/Getty
Garry Monk, knattspyrnustjóri Swansea, tjáði sig í fyrsta sinn í gær um ummæli Gylfa Þórs Sigurðssonar sem vöktu athygli í upphafi vikunnar. Gylfi sagði í viðtali við Fótbolta.net að Monk hafi ekki sent sér eða öðrum leikmönnum sem tryggðu sig inn á EM 2016 með landsliðum sínum SMS-skeyti með hamingjuóskum.Sjá einnig: Swansea tók útskýringar Gylfa gildar „Það voru Gylfa mikil vonbrigði hvernig ummæli hans voru tekin úr samhengi. Því getur maður ekki stjórnað,“ sagði Monk í gær en ummæli hans birtust á Wales Online. „Við höfum verið afar opnir gagnvart fjölmiðlum og maður veltir því fyrir sér hvort að það þurfi að breytast. En við ætlum ekki að breyta því.“ Eftir að viðtal Gylfa var tekið upp í enskum fjölmiðlum sendi landsliðsmaðurinn frá sér yfirlýsingu þar sem að hann útskýrði ummæli sín. „Það skiptir líka engu máli hvort ég hafi fengið SMS frá Gary Monk eða ekki með hamingjuóskum, því hann óskaði okkur auðvitað til hamingju þegar við mættum til æfinga,“ sagði Gylfi. „Ég verð að senda þeim köku næst,“ sagði Monk og brosti. „Ég er stoltur af afrekum þeirra. Félagið er stolt af þeim. Ég óskaði þeim öllum til hamingju. Þetta er ekkert vandamál.“ Monk hefur þótt valtur í sessi eftir að Swansea hefur gefið eftir á síðustu vikum. Liðið hefur unnið aðeins einn leik af síðustu níu í öllum keppnum. Monk segist ekki hafa áhyggjur og að samband hans við stjórnendur félagsins er gott. „Sumt af því sem hefur verið skrifað í fjölmiðlum hefur valdið mér vonbrigðum. Stór hluti þess er óábyrgt og ég held að fólk hafi reynt að taka það sem ég hef sagt úr samhengi. Það býr eitthvað annað því að baki.“ „En þetta fólk hefur ekkert með Swansea að gera og ég get engu stjórnað um það sem er sagt. Ég þarf að einbeita mér að því sem er sagt innan veggja félagsins.“
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Ekkert símtal frá Trump núna og Quansah í tveggja leikja bann Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Sjá meira