Enski boltinn

Níundi deildarsigur Chelsea | Myndbönd

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Samlandarnir Coutinho og Ramires í baráttunni í dag.
Samlandarnir Coutinho og Ramires í baráttunni í dag. Vísir/Getty
Chelsea hélt sigurgöngu sinni í ensku úrvalsdeildinni áfram þegar Lundúnaliðið lagði Liverpool að velli með tveimur mörkum gegn einu á Anfield Road í stórleik helgarinnar.

Heimamenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust yfir strax á 9. mínútu. Þar var að verki Emre Can með skoti fyrir utan vítateig sem fór í Gary Cahill, varnarmann Chelsea, og inn. Þetta var fyrsta mark Can fyrir Rauða herinn, en hann varð um leið sjötti leikmaður Liverpool sem skorar sitt fyrsta mark fyrir félagið gegn Chelsea.

Gleðin var þó skammvinn því aðeins fimm mínútum síðar jafnaði áðurnefndur Cahill metin með skoti af stuttu færi eftir að Simon Mignolet varði skalla Johns Terry. Belgíski markvörðurinn greip skot Cahills en marklínutæknin sýndi að boltinn var kominn inn fyrir.

Staðan var 1-1 í hálfleik og fram á 67. mínútu þegar Diego Costa skoraði sitt 10. mark í ensku úrvalsdeildinni og kom Chelsea yfir.

Brendan Rodgers, sem stillti upp mjög breyttu liði frá leiknum gegn Real Madrid í miðri viku, setti þá Joe Allen, Fabio Borini og Rickie Lambert alla inn á í seinni hálfleik, en þrátt fyrir það tókst Liverpool ekki að brjóta vörn Chelsea á bak aftur. Heimamenn hefðu þó líklega átt að fá vítaspyrnu undir lok leiksins þegar boltinn fór í hönd Cahills innan vítateigs.

Fleiri urðu mörkin ekki og Chelsea styrkti stöðu sína í toppsæti úrvalsdeildarinnar. Liverpool er hins vegar búið að tapa þremur leikjum í röð í öllum keppnum og er aðeins með 14 stig eftir 11 deildarleiki.

Mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir neðan:

Emre Can kemur Liverpool yfir Gary Cahill jafnar Sigurmark Diego Costa



Fleiri fréttir

Sjá meira


×