Enski boltinn

Mata tryggði United langþráðan sigur | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Manchester United vann sinn fyrsta sigur síðan í byrjun október þegar liðið lagði Crystal Palace að velli á Old Trafford með einu marki gegn engu. Juan Mata skoraði sigurmarkið um miðjan síðari hálfleik, en það má sjá í spilaranum hér að ofan.

Heimamenn voru miklu meira með boltann í, en þeim gekk erfiðlega að skapa sér færi gegn sterkri vörn Lundúnaliðsins. Luke Shaw komst næst því að skora fyrir United í fyrri hálfleik, en Julian Speroni varði skot. Frazier Campbell fékk hins vegar besta færi fyrri hálfleiks þegar hann slapp í gegnum vörn United, lyfti boltanum yfir David De Gea en yfir markið.

United herti tökin í seinni hálfleik og komust nálægt því að skora þegar skalla Marouane Fellaini var bjargað á marklínu.

Heimamönnum tókst svo loksins að brjóta ísinn á 67. mínútu þegar Juan Mata, sem var nýkominn inn á sem varamaður, skoraði með góðu skoti fyrir utan teig, sem Speroni hefði þó líklega átt að verja. Mata var svo nálægt því að tvöfalda forskotið skömmu fyrir leikslok, en skot hans small í stöng Palace-marksins.

Fleiri urðu mörkin ekki og United fagnaði langþráðum sigri. Liðið er nú í 6. sæti með 16 stig, en Palace er í því 17. með níu stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×