Moyes gengur stoltur frá borði Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. apríl 2014 12:44 Vísir/Getty
David Moyes er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að stýra Manchester United en viðurkennir að hann hafi sjálfur verið pirraður á gengi liðsins. Moyes var í gærmorgunn rekinn úr starfi knattspyrnustjóra United eftir aðeins tíu mánuði í starfi. „Ég verð alltaf ákaflega stoltur af því að hafa verið ráðinn knattspyrnustjóri eins stærsta fótboltafélags heims,“ sagði Moyes í yfirlýsingu sinni sem birt var í dag. Hann sagði enn fremur að það hefði verið ljóst frá fyrsta degi að það væri mikil áskorun að taka við liði sem hefði búið við mikinn stöðugleika og velgengni í langan tíma. Moyes tók við starfinu af Alex Ferguson sem hætti síðastliðið vor eftir að hafa stýrt United í 27 ár. Honum tókst ekki að fylgja eftir góðum árangri Ferguson síðastliðin ár. „Við höfðum einsett okkur að gera þær breytingar sem þurfti að gera á leikmannahópnum. Um leið þurfti liðið að standa sig vel í úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni.“ „Úrslitin og frammistaða liðsins voru hins vegar ekki í samræmi við það sem stuðningsmenn Manchester United eiga að venjast eða búast við. Ég skil vel gremju þeirra og deili henni.“Yfirlýsingu Moyes má lesa hér.
Enski boltinn Mest lesið Arnar missti af ræsingu en vann: „Ha? Eru þau farin?“ Sport „Einn skemmtilegasti veturinn sem ég hef tekið þátt í“ Sport Fékk hafnabolta í andlitið á 170 km hraða Sport Fá 500 þúsund dollara fyrir að skipta frá Jamaíka yfir til Tyrklands Sport Spenntari fyrir NFL en EM: „Við horfum á einhverja leiki“ Sport Fylkir ennþá bara unnið einn leik í deild Sport Fimm spennandi leikmenn af EM U-21 Sport Ísland lýkur leik í 11. sæti á Billie Jean King Cup Sport Benedikt í Fjölni Körfubolti Fyrrum hollenskur landsliðsmaður framseldur til Hollands Sport Fleiri fréttir Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Garnacho vill vera áfram á Englandi Tottenham festir fyrstu kaup í stjóratíð Frank Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Atlético hætt við Hernandez og sýnir Robertson áhuga Milner spilar til fertugs í von um að slá leikjametið Þrátt fyrir að vera með fimm vill Newcastle einn markvörð til viðbótar Guðlaugur Victor fær nýjan þjálfara Tottenham leitar réttar síns eftir ákvörðun INEOS Vilja að Mbeumo elti stjórann Veltir því fyrir sér hvort „24 klukkutíma reglan“ lifi af vistaskiptin Gamli liðsfélagi Arnars og Bjarka gæti bæst í þjálfarateymi Liverpool „Barcelona og Real Madrid hefðu rekið mig“ Fer fyrst í frí en semur svo við Liverpool Borga fimm milljarða fyrir táning Man. Utd með í slaginn um Ekitike Daninn orðinn stjóri Tottenham Sjá meira