Keane: Smalling og Jones hefur farið aftur Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. maí 2014 18:45 Phil Jones og Chris Smalling fara með Englandi á HM. Vísir/Getty
Roy Keane, aðstoðarlandsliðsþjálfari Írlands, leiðist ekki að ræða málefni Manchester United en þessi fyrrverandi fyrirliði liðsins til átta ára gefur lítið fyrir frammistöðu þriggja leikmanna United á tímabilinu. Keane ræddi við fréttamenn um landsliðshóp Englands á HM en í honum eru varnarmennirnir ungu ChrisSmalling og PhilJones sem Írinn er ekki hrifinn af. „Okkur var sagt fyrir tveimur til þremur árum að Jones væri hinn nýi DuncanEdwards. Smalling átti að vera eitthvað líka. Ég sá United níu eða tíu sinnum spila í vetur og þeir eru langt frá því að vera jafngóðir og talið var að þeir yrðu,“ segir Keane. „Ef eitthvað er þá hefur þeim farið aftur. Það er sagt að það eigi að gefa leikmönnum tækifæri til að þroskast en stundum er maður með leikmenn sem nýta einfaldlega ekki tækifærin sín.“ „Þeir þurfa að gera mun betur ef þeir vilja halda sætum sínum hjá United og ef liðið á að vinna titla. Jones þarf líka að herðast. Alltaf þegar ég sé hann er verið að bera hann af velli. Hann verður að vera harðari - hann er að spila fyrir United,“ segir Keane. Keane skilur það einnig fullvel að MichaelCarrick sé ekki í 23 manna landsliðshópi Englands sem fer á HM í Brasilíu í sumar en hann hefur oft staðið sig betur en á nýliðinni leiktíð. „Það getur varla hafa komið ykkur á óvart að hann var skilinn eftir. Það er ekki hægt að horfa á hvað menn gerðu fyrir tveimur árum. Ef menn eru ekki að standa sig eða aðrir sem spila sömu stöðu að standa sig betur þá verður það bara að vera þannig. Þú verður skilinn eftir heima,“ segir Roy Keane.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu Orra fá hundrað þúsund manns til að öskursyngja Fótbolti „Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Körfubolti Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Enski boltinn Fimmtíu fótboltastjörnur og Formúlu-ökuþór nýttu sér vændishring Fótbolti Stórslasaður eftir að hafa verið blindfullur á hjóli Sport Skall með höfuðið í gólfið og fékk heilahristing Körfubolti Baldvin á samningi hjá Nike: „Hélt ég myndi aldrei ná svona langt“ Sport Ronaldo gæti spilað með syni sínum Fótbolti Glaður að hafa ekki hlýtt gervigreindinni Fótbolti Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Enski boltinn Fleiri fréttir Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Þriðji markvörðurinn stígur upp hjá Liverpool Shearer segir að leikmenn Newcastle hafi fleygt Howe undir rútuna Kjartan tippar á leiki Arsenal og City út tímabilið Kærasta Haalands ekki sátt þegar hann kemur allur klóraður heim Ofurtölvan telur 73 prósenta líkur á að Arsenal verði meistari Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ West Ham felldi Wolves Konaté segist vera nálægt því að framlengja við Liverpool Rosenior finnur fyrir hundrað prósent stuðningi Marco Rose tekur við Bournemouth eftir tímabilið Vonsvikinn Raya ræddi við Hjörvar Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Sjáðu mörkin: Haaland setti allt í hnút og hetjudáð Van Dijk „Hann var grátandi í hálfleik“ „Góður dagur fyrir rauða hluta Liverpool“ „Góð auglýsing fyrir ensku úrvalsdeildina“ „Við fengum stór færi til að vinna“ Haaland hetja City og apríl verður enn verri fyrir Arsenal Gibbs-White með þrennu í mikilvægum sigri Abraham tryggði Aston Villa sigur eftir snilldar viðsnúning hjá Sunderland Van Dijk tryggði Liverpool sigur í nágrannaslagnum Sjáðu sigurmark Cunha, Tottenham tapa stigum og hjólhestinn hjá miðverðinum Arne Slot: Tapið í Meistaradeildinni gæti hjálpað Liverpool „Ef við töpum fyrir Arsenal þá er þetta búið“ „Ég elska það sem ég er að gera“ Man. United með risaskref í átt að Meistaradeildarsæti Sjá meira