Sánchez frábær í sigri Arsenal | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. desember 2014 11:25 Alexis Sánchez kemur Arsenal yfir gegn QPR. vísir/getty
Arsenal lagði QPR að velli með tveimur mörkum gegn einu á Emirates Stadium í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.Myndband með öllu því helsta úr leiknum má sjá hér fyrir neðan. Arsenal-menn voru sterkari í fyrri hálfleik og á 8. mínútu fiskaði Alexis Sánchez vítaspyrnu. Hann fór sjálfur á punktinn en Rob Green varði slaka spyrnu hans. Sánchez bætti svo fyrir mistökin á 37. mínútu þegar hann skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Kieran Gibbs, en Chile-maðurinn átti frábæran leik og var besti maður vallarins. Oliver Giroud missti stjórn á skapi sínu á 53. mínútu þegar hann skallaði Nedum Onuoha eftir að síðarnefndi hafði hrint á bakið á Frakkanum. Martin Atkinsson rak Giroud umsvifalaust af velli. Það kom ekki að sök því tólf mínútum síðar skoraði Tomas Rosicky annað mark Arsenal eftir sendingu frá Sánchez. QPR fékk líflínu á 79. mínútu þegar Mathieu Debuchy felldi Junior Hoilett innan vítateigs. Charlie Austin skoraði úr vítaspyrnunni, en þetta var 10. mark hans í síðustu níu leikjum. Tíu Arsenal-menn héldu út, þótt það hefði staðið tæpt, og fögnuðu mikilvægum sigri sem skilar liðinu upp í 6. sæti. QPR er hins vegar í 16. sæti með 17 stig, tveimur stigum frá fallsæti.Allt það helsta úr leiknum
Enski boltinn Mest lesið Bað kærastann sinn afsökunar Sport Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Fótbolti „Fáránleg staða sem er komin upp“ Enski boltinn Donnarumma sagður á leið til City í sögulegum skiptum Fótbolti Spáir Bröndby sigri í einvíginu á móti Víkingum Fótbolti Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Fótbolti Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Enski boltinn Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Enski boltinn Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Enski boltinn Vill þjóðina upp á dekk: „Langt síðan við höfum átt alvöru heimavöll“ Fótbolti Fleiri fréttir Jason Daði og félagar fá Rauðu djöflana í heimsókn Enska augnablikið: Hugsaði til van Persie eftir frægt mark í Eyjum Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Grealish valdi númerið sitt vegna Rooney og Gascoigne „Fáránleg staða sem er komin upp“ Stuðningsmenn Chelsea bjartsýnastir en mjög svartsýnir hjá Newcastle Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Vildi hvergi annarsstaðar spila Dýrasti leikmaður í sögu City lánaður til Everton Enska augnablikið: Forsjáli félaginn sem missti af öllu Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Coote dæmdur í átta vikna bann fyrir ummælin um Klopp Enska augnablikið: Sá allra svalasti „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Bale af golfvellinum og á skjáinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn Donnarumma skilinn eftir heima Enska augnablikið: Hlaupið út úr húsinu Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Newcastle loks að fá leikmann Delap með tvö í öruggum sigri í síðasta leik fyrir mót Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Enska augnablikið: Hjátrú og alsæla Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Sjá meira