Mistókst að ná samkomulagi um toppstöður ESB Atli Ísleifsson skrifar 17. júlí 2014 08:09 José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnarinnar, og Herman van Rompuy, forseti leiðtogaráðsins, munu báðir láta af embætti á árinu. Vísir/AFP
Leiðtogum aðildarríkja ESB tókst ekki að ná samkomulagi um hverjir skulu taka við stöður forseta leiðtogaráðsins og utanríkis- og öryggismálastjóra sambandsins á fundi sínum í Brussel í gær og í nótt. Leiðtogarnir munu næst funda þann 30. ágúst til að útnefna arftaka þeirra Herman van Rompuy, forseta leiðtogaráðsins, og utanríkismálastjórans Catherine Ashton sem láta af embætti í nóvember næstkomandi. Van Rompuy sagði það óheppilegt að ekki hafi tekist að ná lendingu, en vildi ekki gera of mikið úr málinu þegar hann ræddi við fréttamenn að loknum fundinum. Segir hann að símafundir hans með leiðtogum aðildarríkjanna síðustu daga hafi ekki skilað sér í heildarsamkomulagi um tilnefningar í stöðurnar sem allir gætu sætt sig við. Á vef EU Observer segir að van Rompuy telji fundinn ekki hafa mistekist þar sem þarf að taka tillit til fjölda þátta þegar ákvarða skal hverjir gegni embættunum næstu árin. Skipunartímabil forseta leiðtogaráðsins og utanríkismálastjórans er tvö og hálft ár og getur sami maður einungis gegnt embættinu í tvö tímabil að hámarki. Huga þarf að landfræðilegum þáttum, kyns og að jafnvægi sé milli stórra og lítilla aðildarríkja þegar velja skal nýja menn í embættin. Fyrir fundinn var talið líklegt að Federica Mogherini, utanríkisráðherra Ítalíu, yrði fyrir valinu til að gegna stöðu utanríkismálastjóra, en góðar líkur voru taldar á að ákvörðun um næsta forseta leiðtogaráðsins yrði frestað fram á haust.
Tengdar fréttir Ákvörðun um arftaka van Rompuy frestað fram á haust? Leiðtogar aðildarríkja ESB munu mögulega einungis taka ákvörðun um nýjan utanríkis- og öryggismálastjóra sambandsins á fundi sínum á miðvikudaginn. 14. júlí 2014 11:48 Danir fylgjast grannt með framvindu mála í Brussel Möguleiki er á að leiðtogar aðildarríkja ESB taki ákvörðun um næsta forseta leiðtogaráðs ESB á fundi sínum sem nú stendur yfir í Brussel. Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur, er talin líklegur kostur. 16. júlí 2014 15:08 Koma saman til að velja í toppstöður ESB Leiðtogar aðildarríkja ESB koma saman til að velja nýjan utanríkis- og öryggismálastjóra sambandsins í dag. 16. júlí 2014 11:47 Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Innlent Fleiri fréttir Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Sjá meira
Ákvörðun um arftaka van Rompuy frestað fram á haust? Leiðtogar aðildarríkja ESB munu mögulega einungis taka ákvörðun um nýjan utanríkis- og öryggismálastjóra sambandsins á fundi sínum á miðvikudaginn. 14. júlí 2014 11:48
Danir fylgjast grannt með framvindu mála í Brussel Möguleiki er á að leiðtogar aðildarríkja ESB taki ákvörðun um næsta forseta leiðtogaráðs ESB á fundi sínum sem nú stendur yfir í Brussel. Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur, er talin líklegur kostur. 16. júlí 2014 15:08
Koma saman til að velja í toppstöður ESB Leiðtogar aðildarríkja ESB koma saman til að velja nýjan utanríkis- og öryggismálastjóra sambandsins í dag. 16. júlí 2014 11:47