Útlendingahræðslan virkar Guðsteinn Bjarnason skrifar 16. september 2014 07:00 Jimmie Åkesson, leiðtogi Svíþjóðardemókrata fagnar kosningasigrinum á sunnudagskvöld. Vísir/AP
Svíþjóðardemókratarnir þykja að margra mati ekki í húsum hæfir í sænskri pólitík. Allir hinir stjórnmálaflokkar landsins, jafnt til hægri sem vinstri, hafa sameinast um að hafna öllu samstarfi við þá. Samt sem áður unnu þeir mikinn kosningasigur á sunnudaginn, eina sigurinn sem svo má kalla í þessum kosningum. Nærri 800 þúsund kjósendur greiddu þeim atkvæði sitt, eða þrettán prósent þeirra sem mættu á kjörstað. Þetta tryggði þeim 49 þingmenn á 349 manna þjóðþingi Svíþjóðar, og er flokkurinn þar með orðinn sá þriðji stærsti í landinu – næst á eftir Sósíaldemókrötum, sem eru með 113 þingmenn, og Hófsama flokknum, sem áður hét Hægriflokkurinn og fékk 84 þingmenn. Sjálfir taka Svíþjóðardemókratar þetta sem skýrt merki um að nú verði ekki lengur hægt að útskúfa þeim. „Það væri ólýðræðislegt,“ sagði Richard Jomshof, einn þingmanna flokksins, að loknum kosningunum á sunnudagskvöld: „Ef sænska þjóðin gefur stjórnmálaflokki 13 prósent þá er ekki hægt að hunsa slíkan flokk.“ Eitt stærsta baráttumál flokksins hefur jafnan gengið út á það að stöðva þurfi straum innflytjenda til landsins. Þeir aðlagist samfélaginu illa og skárra væri að nota peninga úr ríkissjóði til að aðstoða fólk í öðrum löndum, svo það þurfi ekki að koma til Svíþjóðar. Aðallega eigi þó að nota peninginn til að hjálpa öldruðum heima fyrir og styrkja lögreglu og dómsvald til að draga úr glæpum. Flokkur Svíþjóðardemókrata var stofnaður árið 1988, hafði frá upphafi margvísleg tengsl við nýnasista en komst aldrei til neinna áhrifa. Á seinni árum hafa leiðtogar flokksins lagt sig fram um að skapa flokknum jákvæða ímynd og gera hann kjósendavænni. Öfgafyllstu meðlimir flokksins hafa verið reknir úr honum, bann hefur verið lagt við því að menn gangi í búningum sem minna á þýska nasista og merki flokksins hefur verið breytt, þannig að það virki ekki jafn ógnvekjandi. Nú er áherslan sú, að flokkurinn sé óhræddur við að segja sannleikann, þótt óþægilegur kunni að vera. Til þess er ýmsum brögðum beitt. „Rasismi er viðbjóðslegur,“ segir til dæmis í einu kosningamyndbanda flokksins frá því fyrir helgina. Þar talar ungur þeldökkur maður, sem síðan bætir við: „Að verja landið okkar, menninguna okkar og sögu okkar er ekki rasismi.“ Svo birtist hjá honum ung kona, ljós á hörund en asísk að uppruna, og segir: „Viljinn til að stöðva heiðursmorð, betl og mansal er heldur ekki rasismi.“ Þau tala bæði óaðfinnanlega sænsku, eru hvítklædd og alvarleg á svip. Leiðtogi flokksins, Jimmie Åkesson, kemur svo til þeirra, harla föðurlegur og segir: „Látið ekki eftirlitslögregluna og hrædda valdhafa þagga niður í umræðunni.“ Þessi málflutningur, og áherslan á erfitt líf innfæddra, skilaði því að kjósendum flokksins fjölgaði um helming frá síðustu kosningum og þingsætum fjölgaði úr 20 í 49.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Fleiri fréttir Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Sjá meira