Erlent

Fengu að hitta veikan son sinn

Freyr Bjarnason skrifar
Foreldrar Ashya King losnuðu úr fangelsi í gær.
Foreldrar Ashya King losnuðu úr fangelsi í gær. Fréttablaðið/AP
Foreldrar enska drengsins Ashya King fengu að hitta son sinn á sjúkrahúsi á Spáni þar sem hann hefur verið undir læknishöndum, samkvæmt BBC.

Foreldrarnir, Brett og Naghemeh King voru handtekin í borginni Madrid eftir að hafa tekið fimm ára son sinn af sjúkrahúsi í ensku borginni Southampton og flutt til Spánar. Þetta gerðu þau þvert á læknisráð en drengurinn er með heilaæxli.

Saksóknaraembættið í Bretlandi dró handtökuskipun á hendur foreldrunum til baka en málið hefur vakið mikla athygli þar í landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×