Enski boltinn

Markalaust hjá Chelsea og Norwich

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Chelsea gerði markalaust jafntefli við Norwich á heimavelli í seinni leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Þjóðverjinn Andre Schürrle komst næst því að skora í fyrri hálfleik þegar skot hans small í stöng Norwich-marksins.

Edin Hazard og David Luiz komu inn á í hálfleik og sá síðarnefndi lét strax að sér kveða þegar hann átti þrumuskot í slána.

Chelsea-menn voru miklu meira með boltann og sóttu án afláts að marki Norwich. Hazard hleypti miklu lífi í leik Chelsea og komst nálægt því að skora þegar um tíu mínútur voru eftir en John Ruddy varði skot hans úr góðu færi.

Chelsea-mönnum tókst hins vegar ekki að skora og þurftu því að sætta sig við markalaust jafntefli.

Chelsea situr í 3. sæti með 79 stig, einu færra en Manchester City og Liverpool sem eru í sætunum fyrir ofan. City og Liverpool eiga bæði tvo leiki eftir, en Chelsea aðeins einn.

Norwich er með 33 stig í 18. sæti og þarf að vinna Arsenal í lokaumferðinni og treysta á að Sunderland tapi báðum leikjunum sem liðið á eftir til að halda sæti sínu í deildinni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×