Solskjær: Fullkomin byrjun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. janúar 2014 20:34 Ole Gunnar Solskjær fagnar sigri. Mynd/NordicPhotos/Getty
Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær stýrði Cardiff City til sigurs í dag í fyrsta leiknum sínum sem knattspyrnustjóri Arons Einars Gunnarssonar og félaga. Cardiff vann þá 2-1 endurkomusigur á útivelli á móti Newcastle í 3. umferð enska bikarsins. Það var við hæfi að varamenn liðsins tryggðu Solskjær sigur í fyrsta leiknum sem stjóri í Englandi en Solskjær er þekktastur fyrir að skora eftir að hafa komið inná sem varamaður. „Það er frábært að ná að snúa við leiknum. Ég hef 90 mínútur til að nota fjórtán leikmenn. Ég valdi liðið sem ég taldi myndi valda Newcastle mestum erfiðleikum," sagði Ole Gunnar Solskjær við Sky Sports en Aron Einar spilaði allan leikinn. Craig Noone skoraði með fyrstu snertingu eftir að hafa komið inná sem varamaður og annar varamaður, Fraizer Campbell, skoraði síðan sigurmarkið tíu mínútum fyrir leikslok. „Ég varð að bíða með Steven (Caulker), Fraizer (Campbell) og Craig (Noone) á bekknum því þeir voru að glíma við smá meiðsli. Það kom sér vel að lokum. Þú vilt eiga menn inni á bekknum sem geta haft áhrif á leikinn þegar þeir koma inn," sagði Solskjær. „Þetta á ekki að snúast um mig en þetta er fullkominn byrjun á nýjum tímum hjá Cardiff. Strákarnir í liðinu hafa þurft að venjast miklum breytingum að undanförnu og það er gott fyrir þá að byrja á sigri í bikarnum. Það er aldrei auðvelt að koma hingað upp eftir hvað þá þegar þú lendir 1-0 undir. Það eru ekki mörg lið sem koma til baka á þessum velli og það þarf mikinn karakter til að ná því," sagði Solskjær sáttur.Mynd/NordicPhotos/GettyMynd/NordicPhotos/Getty
Enski boltinn Mest lesið Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Golf Mourinho hringdi í Ferguson og grét Enski boltinn Trump segir að það væru skelfileg mistök að koma Infantino frá völdum Fótbolti Sannaði að draumar geta ræst með gamalli mynd Fótbolti „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Fótbolti „Mér líður frábærlega“ Enski boltinn Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Enski boltinn Af botninum og varð Evrópumeistari eftir 324 daga fjarveru vegna meiðsla Sport Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum Fótbolti Fleiri fréttir Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Grípa í taumana eftir banaslys Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Barcelona blandar sér í baráttuna um Rodri Sauð á leikmönnum Arsenal eftir tapið fyrir Betis Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG Sjá meira