Svikin loforð hjá Mascherano í Liverpool 17. febrúar 2014 12:45 Javier Mascherano mætir með Barcelona til Manchester í vikunni. Vísir/Getty
Javier Mascherano opnar sig í dag í fyrsta skipti um félagaskipti sín frá Liverpool til Barcelona. Argentínumaðurinn, sem lék í þrjú ár á Anfield, segir svikin loforð hafa meðal annars orðið til þess að hann fór til Katalóníu. Macherano leið vel hjá Liverpool undir stjórn Rafael Benítez en honum gekk verr að eiga við Roy Hodgson og framkvæmdastjórann Christian Purslow. „Ég vildi ekki segja neitt á þeim tíma vegna virðingar minnar fyrir Liverpool. Kannski voru það mistök því fólk fór að tala illa um mig. En ég sé ekki eftir því,“ segir Mascherano. „Liverpool er sérstakt félag og það á slæma framkomu ekki skilið. Þeir sem voru yfir á þeim tíma, stjórinn og Christian Purslow, eru báðir farnir en þeir vita sannleikann.“ „Þegar ég mætti aftur til Liverpool á undirbúningstímabilinu átti ég marga fundi með þeim. Þeir lofuðu öllu fögru en stóðu ekki við neitt,“ segir Argentínumaðurinn. Þegar Barcelona var búið að leggja fram tilboð í Mascherano og félagaskiptin urðu líklegri með hverjum deginum sem leið neitaði Mascherano að spila leik gegn Manchester City í ágúst 2010. Það vakti upp mikla reiði hjá stuðningsmönnum liðsins og létu gamlar hetjur eins og Phil Thompson hann heyra það í fjölmiðlum. „Ég vaknaði ekkert einn daginn og neitaði að spila fyrir Liverpool. Í leiknum á undan Man. City gegn Arsenal gaf ég allt mitt því ég var í Liverpool-treyjunni.“ „Af hverju hefði ég átt að vera leggja mig allan fram í þann leik en neita svo að spila þann næsta? Það gengur bara ekki upp,“ segir Javier Mascherano.Javier Mascherano í leik með Liverpool.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Enski boltinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR Íslenski boltinn Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Fótbolti Fleiri fréttir Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjá meira