Enski boltinn

Courtois leikur með Chelsea á næsta tímabili

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Thibaut Courtois leikur á Stamford Bridge á næsta ári.
Thibaut Courtois leikur á Stamford Bridge á næsta ári. Vísir/Getty
Marc Wilmots, þjálfari belgíska landsliðsins, staðfesti í samræðum við Gerard HoullierThibaut Courtois muni leika með Chelsea á næsta tímabili eftir leik Belgíu og Rússlands.

Wilmots náðist á mynd að tala við Houllier sem var knattspyrnustjóri Liverpool um tíma en sinnir nú hlutverki hjá FIFA.

Courtois gekk til liðs við Chelsea sumarið 2011 en hefur verið á láni hjá Atletico Madrid undanfarin þrjú ár. Varð hann meistari með Madrídarmönnum en talið er að hann muni taka byrjunarliðssæti Petr Cech í Chelsea á næsta tímabili.

„Hann fer aftur til Chelsea, þeir munu selja Cech ef sá möguleiki kemur upp,“ sagði Wilmots í samtali við Houllier fyrir framan belgíska miðla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×