Enski boltinn

Suarez svarar gagnrýnendum fullum hálsi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Luis Suarez var hetja Úrúgvæ í gær en liðið hafði betur gegn Englandi, 2-1, á HM í Brasilíu. Suarez skoraði bæði mörk sinna manna.

„Fyrir leikinn höfðu of margir í Englandi hlegið að framferði mínu síðastliðin ár. Ég vil gjarnan fá að vita hvað þeim finnst núna,“ sagði Suarez sem leikur með Liverpool í Englandi og hefur margsinnis komið sér í fréttir fyrir hegðun sína.

„Mig hefur dreymt um þetta og ég nýt nú augnabliksins eftir alla þá gagnrýni sem ég hef fengið á mig. Verði ykkur að góðu.“

Hann tileinkaði eiginkonu sinni og börnum mörkin tvö sem hann skoraði í gær, sem og lækni sínum heima í Úrúgvæ sem kom honum af stað eftir að hann gekkst undir aðgerð á hné þann 22. maí.

„Ég fann fyrir óþægindum í hnénu fyrir leikinn en hann sagði mér að gleyma því. Það tengdist aðgerðinni ekkert. Og hann hafði rétt fyrir sér.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×