Enski boltinn

Pulis valinn knattspyrnustjóri ársins

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Í kvöld var tilkynnt að Tony Pulis hefði verið valinn knattspyrnustjóri ársins í ensku úrvalsdeildinni af samtökum knattspyrnustjóra í Englandi.

Pulis tók við liði Crystal Palace í nóvember síðastliðnum en liðið var þá í fallsæti með aðeins fjögur stig eftir tíu leiki. Liðið hafði tapað níu af fyrstu tíu leikjum sínum á tímabilinu.

En Pulis náði ótrúlegum árangri með liðið sem endaði að lokum í ellefta sæti deildarinnar með 45 stig. Liðið var öruggt með sæti sitt í deildinni þegar enn voru nokkrar umferðir til loka tímabilsins.

Palace jafnaði félagsmet í apríl með því að vinna fimm leiki í röð í efstu deild en liðið náði svo frægu jafntefli við Liverpool, 3-3, í næstsíðustu umferð tímabilsins eftir að hafa verið 3-0 undir þegar tíu mínútur voru til leiksloka.

Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, þótti einnig koma sterklega til greina en undir hans stjórn varð liðið í öðru sæti deildarinnar, aðeins tveimur stigum á eftir meisturum Manchester City.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×