Gylfi skorar á móti sigursælu klúbbunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. desember 2014 07:00 Frábær frammistaða Gylfi Þór Sigurðsson. Fréttablaðið/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson byrjaði tímabilið á því að skora á Old Trafford í Manchester og hann endaði árið 2014 á því að skora á Anfield í Liverpool. Gylfi skoraði tvö síðustu mörk Swansea á árinu 2014 og hefur þar með komið að 12 af 24 mörkum liðsins í fyrri hluta ensku úrvalsdeildarinnar. Gylfi hefur skorað fimm mörk í öllum keppnum á þessu tímabili og það vekur vissulega athygli að þau hafa komið í leikjum á móti sigursælustu klúbbunum í efstu deild á Englandi. Gylfi hefur skoraði í deildinni á móti Manchester United (20 sinnum enskur meistari), Liverpool (18 sinnum meistari), Arsenal (13 sinnum meistari) og Aston Villa (7 sinnum meistari) en hann skoraði einnig í deildabikarnum á móti Everton (9 sinnum meistari). Frammistaða Gylfa hefur vakið mikla athygli og Jamie Carragher, sérfræðingur á Sky Sports, segir að Gylfi sé sá leikmaður sem hafi bætt sig mest frá síðasta tímabili. „Hann hefur verið frábær. Við höfum rætt mikið um samband Cesc Fabregas og Diego Costa en það sama á við um hann og Wilfried Bony. Aðeins Fabregas hefur gefið fleiri stoðsendingar en hann á tímabilinu en Gylfi skorar líka mörk, eins og við sáum gegn Liverpool. Þetta gekk ekki alveg upp hjá honum hjá Tottenham en hann er alvöru,“ sagði Jamie Carragher en Gary Neville var á því að Tottenham-maðurinn Harry Kane hefði bætt sig mest. Gylfi Þór hefur þegar bætt sinn besta árangur á einu tímabili í ensku úrvalsdeildinni þótt tímabilið sé bara hálfnað. Gylfi hafði mest áður komið með beinum hætti að tíu mörkum á einni leiktíð í ensku úrvalsdeildinni. Gylfi er jafnframt búinn að fjórfalda sinn besta árangur fyrir jól því íslenski landsliðsmaðurinn hafði mest áður komið að þremur mörkum fyrir áramót sem var á tímabilinu í fyrra. Fyrir þetta tímabil var Gylfi samtals með 3 mörk og 2 stoðsendingar í 32 leikjum fyrir áramót en hann var kominn í þá tölu strax í þriðja leik sínum með Swansea á þessu tímabili. Gylfi verður aftur í sviðsljósinu á nýársdag þegar Swansea heimsækir QPR á Loftus Road. Heil umferð fer að venju fram á fyrsta degi nýs árs.
Enski boltinn Mest lesið Leik frestað á U.S. Open Golf Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Fótbolti Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Fótbolti Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Sport Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risamótum Golf Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Golf Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Fleiri fréttir Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Sjá meira